„FIFA hefur orðið spillt undir stjórn Infantino“ Valur Páll Eiríksson skrifar 11. maí 2026 09:33 Gianni Infantino og hans menn hjá FIFA eiga eftir að ná sjónvarpssamningum við tvö fjölmennustu ríki heims. Getty/Rich Lam Shen Haixiong, forseti CCTV, ríkissjónvarpsstöðvar Kína, vandar Gianni Infantino og stjórnendum FIFA ekki kveðjurnar. Sambandið rukki óheyrilegar fjárhæðir fyrir sýningarrétt af stærsta fótboltamóti heims.
Líkt og greint var frá á Vísi á dögunum er hætt við því að HM verði ekki sýnt löglega í Kína, né í Indlandi, vegna deila um sjónvarpsréttindi. Enginn aðili í löndunum tveimur hefur viljað greiða FIFA uppsett verð. Í löndunum tveimur býr um þriðjungur allra jarðarbúa. Fari svo að samningar um réttindi náist ekki væri því sameiningarafl fótboltans að fara á mis við hressilegan hluta mannkyns. FIFA mun hafa boðið CCTV í Kína að kaupa réttinn fyrir 300 milljónir dollara, eða um 37 milljarða króna. Sú upphæð hafi nú lækkað umtalsvert en sé enn töluvert hærri en stjórnarmenn þar séu tilbúnir að reiða fram. Haixiong segir allt í reyk hjá FIFA. Græðgi stýri þar ferðinni.Paolo Bruno/Getty Images Shen Haixiong, forseti CCTV, vandar Gianni Infantino, forseta FIFA, ekki kveðjurnar. „FIFA hefur orðið spillt undir stjórn Infantino. Sambandinu hefur aðeins orðið annt um peninga – aðdáendurnir eru ekki lengur áhyggjuefni þeirra. Líttu bara á miðaverð á HM-leiki. Hvernig hefur meðalmaður úr verkalýðsstétt efni á þeim?“ spyr Haixiong. „Fótbolti var áður eign allra, en þeir hafa hægt og rólega tekið boltann frá millistéttinni.“ „Þeir gætu misst samanlagt 3 milljarða áhorfenda frá Indlandi og Kína einum saman ef þeir draga ekki úr græðgi sinni,“ segir Haixiong.
HM 2026 í fótbolta FIFA Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Golf Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Fótbolti Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Fótbolti Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Fótbolti Fleiri fréttir Rooney vill að Mainoo byrji hjá Englandi frekar en Anderson Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Maður dagsins á HM: Hetja Mexíkó á HM sem fæddist í Kólumbíu Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fjögurra áratuga bið á enda hjá Mexíkóum Ólýsanleg sorg fyrirliðans Verður áfram í Þýskalandi Koeman hættir með Holland Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Haaland hetjan og Norðmenn mæta Brössum Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Dansaði gleðidans eftir að Íran datt úr leik Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Undir rannsókn fyrir nauðgun á miðju heimsmeistaramóti Særingalæknirinn frá Gana beinir göldrum sínum að Messi og félögum Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast Maður dagsins á HM: Fagnaði sigri á móti fyrirmyndinni Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjáðu Atla afgreiða Skagamenn og færa Framara nær KR Allir Paragvæar fá frí í dag til að fagna Sjá meira