Oddvitar segja þéttingarstefnuna komna út í skurð Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 12. maí 2026 18:18 Telma Tómasson les kvöldfréttir í kvöld. Húsnæðisuppbygging er á meðal þeirra mála sem eru ofarlega í huga kjósenda nú þegar örfáir dagar eru til sveitarstjórnarkosninga. Berghildur Erla, fréttakona okkar, ræddi við oddvita framboðanna í borginni og spurði þá út í þéttingarstefnuna og húsnæðisuppbyggingu. Þrír oddvitar segja þéttingarstefnuna komna út í skurð.
Nú er búið að koma hátt í 150 farþegum sem voru fastir um borð í skipinu Hondius til síns heima. Níu greindust í hópsýkingu Hantaveiru um borð í skipinu og þrír létust. Yfirmaður WHO varaði ríki heims við því að fleiri Hantaveirusmit gætu komið upp á næstu dögum. Við fáum Guðrúnu Aspelund sóttvarnalækni í sett til að fá hana til að fræða okkur betur um veiruna. Fólkið sem braust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í fyrrinótt skildi eftir bréf á vettvangi með skilaboðum sem beindust að eigendum. Dýr drápust eftir innbrotið og önnur meiddust. Formaður Dýraverndarsambands Íslands fordæmir athæfið og segist ekki trúa því að þarna hafi sannir dýravinir verið á ferð. Við tökum stöðuna á breskum stjórnmálum en þrýstingurinn á Keir Starmer forsætisráðherra eykst með hverjum deginum og í dag hafa fjórir ráðherrar í hans ríkisstjórn sagt af sér og hvatt hann til að gera slíkt hið sama. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur falið lögmannsstofu að rannsaka hvað skýri nærri ársseinkum á umhverfismati Sundabrautar. Kristján Már Unnarsson fer ofan í saumana á þessu máli en hann ætlar líka að segja okkur frá því að opnun nýs Vestfjarðavegar um Gufudalssveit muni seinka enn frekar. Fyrri undankeppni Eurovision er á dagskrá í kvöld. Fréttastofa fór á stúfana og ræddi við fólkið í landinu um söngvakeppnina en á þeim var að heyra að sjaldan eða aldrei væri jafn lítil spenna fyrir keppninni. Við verðum þá í beinni útsendingu með fulltrúum Impovision sem bjóða fólki upp á valmöguleika í stað Eurovision. Í sportinu segjum við frá því að fjárhagsstaða HSÍ er grafalvarleg en sambandið skuldar tæpar 150 milljónir og þarf aðstoð frá ríkinu. Þá verður rætt við Sigtrygg Arnar leikmann Tindastóls fyrir stórleik kvöldsins. Og í Ísland í dag mætast fulltrúar yngstu flokkanna sem bjóða fram í borginni og takast á um helstu málefni. Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar á slaginu hálf sjö. Klippa: Kvöldfréttir 12. maí 2026
Kvöldfréttir Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Sex ára stúlka setti heimsmet Erlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Fleiri fréttir Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Sjá meira