Vegfarendur verða að þola Ódrjúgshálsinn enn lengur Kristján Már Unnarsson skrifar 12. maí 2026 20:31 Frá veginum um Ódrjúgsháls. Horfur eru á að þessi vegarkafli verða áfram hluti Vestfjarðavegar næstu árin. Egill Aðalsteinsson Opnun nýs Vestfjarðavegar um Gufudalssveit seinkar enn og tilkynnti Vegagerðin í dag að brýrnar yfir Djúpafjörð og Gufufjörð, sem leysa eiga af Ódrjúgsháls, yrðu ekki tilbúnar fyrr en í árslok 2028.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Sýnar. Endurnýjun þjóðvegarins um Gufudalssveit var reyndar í gíslingu deilna um Teigsskóg í tvo áratugi. En eftir að höggvið var á þann hnút árið 2021 vonuðust ráðamenn Vegagerðarinnar til að heildarverkinu lyki þremur árum síðar, árið 2024. En það gekk ekki eftir og þegar opnun Þorskafjarðarbrúar var fagnað haustið 2023 var þáverandi innviðaráðherra kominn með nýtt ártal á verklok. „Í síðasta lagi verður allt búið 2027, vonandi 2026, en það fer auðvitað eftir því hversu hratt og vel gengur,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson eftir að hafa klippt á borðann. Frá opnun brúarinnar yfir Þorskafjörð í haustið 2023.Vegagerðin Síðustu verkþættirnir, að þvera Djúpafjörð og Gufufjörð, eru reyndar langt komnir. Lokaútboðið, smíði 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð, hefur hins vegar dregist. Góðu fréttirnar eru þær að í dag tilkynnti Vegagerðin að stefnt væri að því að bjóða út smíði brúarinnar í næstu viku. Vondu fréttirnar eru hins vegar þær að Vegagerðin tilkynnti samtímis að brúin ásamt vegtengingum frá Hallsteinsnesi yfir á Skálanes yrði ekki tilbúin fyrr en í lok árs 2028, eins og fram kom hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Þetta þýðir að vegfarendur á leið um sunnanverða Vestfirði þurfa áfram að aka um hinn illræmda Ódrjúgsháls, ekki bara út þetta ár, heldur allt næsta ár og allt þarnæsta ár einnig, eða í tvö og hálft ár til viðbótar hið minnsta. Langþráð stytting Vestfjarðavegar bíður einnig, en verkefninu var ítarlegar lýst í þessari frétt í mars:
Teigsskógur Vegagerð Reykhólahreppur Samgöngumál Samgönguáætlun Tengdar fréttir Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi. 24. mars 2026 21:00 Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit, yfir Gufufjörð og Djúpafjörð, tefst um þrjá mánuði hið minnsta. Ástæðan er óleyst kærumál vegna verkútboðsins en Vegagerðin hafnaði tveimur lægstu tilboðunum. 13. ágúst 2025 13:31 Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra. 25. október 2023 22:22 Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira
Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi. 24. mars 2026 21:00
Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit, yfir Gufufjörð og Djúpafjörð, tefst um þrjá mánuði hið minnsta. Ástæðan er óleyst kærumál vegna verkútboðsins en Vegagerðin hafnaði tveimur lægstu tilboðunum. 13. ágúst 2025 13:31
Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra. 25. október 2023 22:22