Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Samúel Karl Ólason skrifar 13. maí 2026 16:10 Daníel F. Guðbjartsson. Daníel F. Guðbjartsson hefur verið ráðinn sem forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Hann var ráðinn af Amgen, móðurfélagi ÍE, eftir Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri, var rekinn fyrir rúmu ári síðan. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu frá 1998.
Í tilkynningu segir að Daníel muni leiða starfsemi fyrirtækisins á Íslandi og stýra áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins sem einnar öflugustu rannsóknarmiðstöðvar heims á sviði erfðafræði mannsins. „Með ráðningunni stefnir Amgen að því að efla enn frekar vísindastarf Íslenskrar erfðagreiningar og efla starf fyrirtækisins til uppgötvunar nýrra lyfjamarka og dýpri skilnings á meinafræði sjúkdóma,“ segir í tilkynningunni. Daníel hefur starfað hjá Íslenskri erfðagreiningu um árabil. Þar er hann sagður hafa gegnt lykilhlutverki í vísindastarfi og vexti fyrirtækisins. Áður var hann yfirmaður tölfræðigreiningar og tók við stöðu yfirvísindamanns á síðasta ári. „Ég hef fengið tækifæri til að vaxa og þróast með Íslenskri erfðagreiningu í tæpa þrjá áratugi og hlakka til að takast á við þetta nýja hlutverk. Við lifum tíma mikilla framfara í tilraunatækni og greiningaraðferðum, ekki síst á sviði gervigreindar,“ er haft eftir Daníel í tilkynningunni. „Við munum áfram leggja áherslu á hágæða vísindastarf og trausta gagnagreiningu til að skapa nýja þekkingu sem dýpkar skilning okkar á sjúkdómum.“ Howard Chang, M.D., Ph.D., aðstoðarforstjóri alþjóðlegra rannsókna og vísindastjóri Amgen segir Daníel búa yfir djúpri sérþekkingu á þeim vísindalega og aðferðafræðilega grunni sem starfsemi og rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar byggja á. „Íslensk erfðagreining gegnir áfram lykilhlutverki í alþjóðlegu rannsóknastarfi okkar og stefnu. Við munum byggja áfram á traustum grunni fyrirtækisins sem gegnir lykilhlutverki í erfðarannsóknum og stuðlar að raunverulegum framförum og framþróun í þágu sjúklinga.“
Íslensk erfðagreining Vistaskipti Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira