Afturelding skoraði fimm mörk og flaug áfram með Víkingum Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. maí 2026 21:34 Elmar Kári átti stórleik og litli bróðir hans lagði upp mark fyrir hann. afturelding Afturelding rústaði Njarðvík með 5-2 sigri í sextán liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Á sama tíma vann Víkingur 2-0 gegn HK og tryggði sig einnig áfram í átta liða úrslitin.
Afturelding og Njarðvík eru bæði Lengjudeildarlið sem ætla sér stóra hluti í sumar en Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, hefur eflaust áhyggjur af liðinu eftir leik kvöldsins og ljóst er að hann mun ekki verða bikarmeistari annað árið í röð. Afturelding skoraði fimm mörk áður en Njarðvík vaknaði úr rotinu og minnkaði muninn á lokamínútunum. Stórleikur hjá Gogic fjölskyldunni Aron Elí Sævarsson, Elmar Kári Enessen Gogic (tvö mörk), Bart Kooistra og Óðinn Bjarkason skoruðu mörk Aftureldingar. Felix Lima Santos og Haraldur Smári Ingason skoruðu mörk Njarðvíkur. Elmar Kári gaf einnig tvær stoðsendingar og yngri bróðir hans, Enes Þór Enesson Gogic, lagði upp fimmta mark Afturelding. Sannkallaður stórleikur hjá Gogic bræðrunum. Faðirinn Enes Gogic, aðstoðarþjálfari Aftureldingar, horfði stoltur á þá af hliðarlínunni. HK varðist Víkingum í rúmlega sjötíu mínútur áður en stíflan brast Mörkin stóðu meira á sér í leik HK og Víkings. Heimamenn í Kórnum náðu að verjast Víkingum lengi en undir lok leiks skoruðu þeir tvö mörk og tryggðu sigurinn. Valdimar Þór Ingimundarson skoraði fyrra mark Víkings á 72. mínútu. Markið kom upp úr aukaspyrnu og Oliver Ekroth dempaði boltann laglega fyrir Valdimar. Víkingar fengu svo vítaspyrnu á 86. mínútu þegar skot Gunnars Vatnhamars hitti hönd varnarmanns. Elías Már Ómarsson steig á punktinn og hélt áfram að sýna Víkingum sína fínu sparkfimi. Framlengt á Akranesi Leik ÍA og Grindavíkur lauk með 7-6 sigri Skagamanna eftir vítaspyrnukeppni. Nánar má lesa um þann leik hér fyrir neðan. Tíu Blikar tryggðu sig áfram gegn Þrótti
Mjólkurbikar karla Afturelding UMF Njarðvík HK Víkingur Reykjavík Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Sjá meira