Körfubolti

„Það er ekki hægt að lýsa þessari til­finningu“

Siggeir Ævarsson skrifar
Brittany í leiknum í kvöld. Í bakgrunni má sjá framkvæmdastjóra KKÍ ekki í fókus, sem þurfti greinilega að fletta tölfræði leiksins upp í símanum sínum á þessum tímapunkti.
Brittany í leiknum í kvöld. Í bakgrunni má sjá framkvæmdastjóra KKÍ ekki í fókus, sem þurfti greinilega að fletta tölfræði leiksins upp í símanum sínum á þessum tímapunkti. vísir/Hulda Margrét

Brittany Dinkins átti í fullu fangi með að halda aftur af gleðitárunum þegar Andri Már greip hana í viðtal strax í leikslok í kvöld.

„Það er ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu“. Þetta er eitthvað sem þú verður að taka þátt í og upplifa. Þegar maður leggur á sig mikla vinnu þá uppsker maður eins og maður sáir og í kvöld erum við að því.“

Brittany fagnaði sigrinum innilega með liðsfélögum sínum en liðið tapaði í úrslitum í fyrra einmitt gegn Haukum og Britt sagði að þær hefðu í raun verið að berjast í heilt ár.

„Þetta er langt tímabil og í raun alveg síðan síðasta vor. Við höfum verið að berjast og það hefur ekkert verið auðvelt og enginn rétt okkur neitt. Við höfum barist fyrir öllu og hafa loks náð að klára þetta með titli er yfirþyrmandi tilfinning.“

Þetta var fimmta tímabilið sem Brittany spilar hér á Íslandi. Tvisvar hefur bikarmeistaratitill komið í hús en þetta er í fyrsta sinn sem hún fer alla leið og nær í þann stóra.

„Þetta er góð tilfinning. Stundum spyr maður sig af hverju hann var ekki kominn fyrr en núna er augnablikið komið og ég ætla að drekka það í mig. Þetta var það eina sem ég átti eftir og nú er það komið og ég er afar þakklát.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×