Alþjóðasamstarf er Íslendingum lífsnauðsynlegt Haraldur Ólafsson skrifar 18. maí 2026 07:45 Öðru hverju spretta upp hugmyndir um að fólk sem hefur efasemdir um að Íslendingar eigi að gangast Evrópusambandinu á hönd sé andsnúið alþjóðasamstarfi. Fátt er fjær lagi. Slík umræða getur hæglega leitt til þess að athyglin færist frá efnislegri umræðu um kosti og galla Evrópusambandsaðildar yfir í almennar getgátur um afstöðu fólks til alþjóðasamstarfs, sem engu skila. Þótt framleiðsla til útflutnings frá Íslandi sé fjölbreyttari en hún var fyrir nokkrum áratugum, er atvinnulíf engu að síður einhæft í samanburði við það sem gerist í stóru löndunum. Lesandanum dugir að líta í kringum sig þar sem hann er staddur til að sjá að nánast allt í manngerðu umhverfi okkar er innflutt, eða gert úr innfluttu efni. Af þessari ástæðu einni er gríðarlega mikilvægt að tryggja sem frjálsasta verslun við umheiminn, bæði fyrir innflutning á neysluvöru og öðrum aðföngum og ekki síður til að tryggja aðgang að mörkuðum fyrir íslenska framleiðslu. Trygging fyrir greiðum inn- og útflutningi fæst með öflugu alþjóðasamstarfi þar sem sæst er á reglur og viðmið í hvers konar viðskiptum og samskiptum. Einfaldast er að viðhafa frjálsa verslun. Það er líka að jafnaði best, en stundum verður niðurstaðan engu að síður einhverjar hindranir og tollar. Til að hafa hemil á viðskiptahindrunum er nauðsynlegt að vera í þeirri stöðu að geta samið við önnur ríki eða bandalög ríkja. Ísland og fulltrúar Íslands þurfa að hafa aðgang að þeim alþjóðlega vettvangi sem skiptir máli hverju sinni og að hafa vald til að semja um það sem skiptir máli.Verulega mundi kvarnast úr því valdi og þeim aðgangi ef Ísland innlimaðist í Evrópusambandið. Það á bæði við um samstarf innan sumra alþjóðlegra stofnana sem og viðskiptasamninga við ríki utan Evrópusambandsins, en Evrópusambandið annast slík verk sjálft, fyrir hönd allra sem í því sambandi eru. Við það borð vega hugsanlegir sérhagsmunir örþjóða vitaskuld ekki þungt. Niðurstaðan af þessari stuttu upprifjun er að samvinna á alþjóðavettvangi er Íslendingum lífsnauðsynleg og það er alls ekki ráðlegt að útvista henni til annarra ríkja eða ríkjabandalaga. Á næstunni verða rædd nokkur mikilvæg atriði í alþjóðasamstarfi í umhverfismálum, þróunarmálum og vísindum. Höfundur er formaður Heimssýnar, félags um fullveldi Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haraldur Ólafsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun