Körfubolti

Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum

Aron Guðmundsson skrifar
Íslandsmeistarar Njarðvíkur með bikarinn eftirsótta.
Íslandsmeistarar Njarðvíkur með bikarinn eftirsótta. Vísir/Hulda Margrét

Brittany Dinkins, leikmaður Íslandsmeistara Njarðvíkur og einn af reynsluboltunum í liðinu hefur verið að ala upp dólg í leikmönnum liðsins. Hvatti þá til þess að vera töffara inn á vellinum.

Njarðvík tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna í þriðja sinn í sögunni með sigri gegn Haukum á heimavelli í gærkvöldi, 95-70 og vann úrslitaeinvígið 3-1. 

Krista Gló Magnúsdóttir, fyrirliði Njarðvíkur, fór fyrir Íslandsmeisturunum með góðu fordæmi og hefur í gegnum tímabilið verið að setja niður afar mikilvægar og stórar körfur. 

Krista er orðin leikjahæsti leikmaður Njarðvíkur frá upphafi í úrslitunum og er um að ræða annan Íslandsmeistaratitill hennar. 

Klippa: Ól upp dólg í Íslandsmeisturunum

„Bara geggjað. Kemur mér alveg smá á óvart,“ sagði Krista Gló eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í höfn. 

„Maður verður að vera tilbúin. Bara grípa og skjóta. Ekki hugsað mikið,“ sagði Krista aðspurð um hvert leyndarmálið væri að baki þessum mikilvægu körfum hennar. 

Brittany Dinkins, einn besti leikmaður Njarðvíkur hefur verið að ala upp dólg í sínum liðsfélögum á tímabilinu. Hvetja þær til þess að láta í sér heyra og fagna vel og innilega stórum stundum inn á vellinum.

„Það er allt til í því,“ svaraði Krista. „Hún bara hvetur okkur til þess að vera töffarar.“

Viðtalið við Kristu í Körfuboltakvöldi í gær eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í höfn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×