Erfitt að veiða ufsa án kvóta í þorski Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar 20. maí 2026 07:30 Landsamband smábátaeigenda hefur réttilega bent á að gríðarlegt magn af kvóta í ufsa fellur niður óveiddur undanfarin ár og veldur tapi upp á tugi milljarða fyrir sjómenn, fiskverkendur og þjóðarbúið. En það skortir eitt veigamikið atriði til að veiða ufsa og það er aukin kvóti í þorski. Atvinnuvegaráðherra hefur undanfarin ár farið nákvæmlega eftir ráðgjöf Hafró. En á sama tíma, hinu megin við miðlínu Íslands og Grænlands eru nágrannar okkar Grænlendingar að gefa út nærri tvöfalt hærri kvóta en þeirra eigin Hafró gefur ráðleggingar um, til að kanna veiðiþol þorskgangna er koma syndandi yfir miðlínuna frá Íslandsmiðum. Landsamband smábátaeiganda ætti frekar að einhenda sér í að hvetja atvinnuvegaráðherra að taka fram fyrir hendurnar á Hafró og gefa út mun meiri kvóta í þorski en Hafró mun koma til með að veita ráðgjöf um fyrir næstkomandi fiskveiðiár. Öðruvísi er ekki hægt að veiða ufsa sem brennur inni á hverju ári. Vonandi tekur Landsambandið áskorun þessari og fer að beita sér í réttmætri og nauðsynlegri gagnrýni á Hafró varðandi stofnmælingu, aðferðafræði og ráðgjöf í þorskveiðum Íslendinga. Að lokum hvet ég alla þá sem hafa áhuga á fiskveiðum á Íslandi og stinga niður penna með hvatningu til atvinnuvegaráðherra um að taka fram fyrir hendurnar á Hafró og gefa út mun meiri aflaheimildir í þorski heldur en Hafró ráðleggur. Af hverju eru Íslensk stjórnvöld að ala upp þorsk á Íslandsmiðum sem er síðan veiddur hinum megin við miðlínu Grænlands og Íslands, þannig að íslenskir sjómenn geta ekki einu sinni veitt aðrar tegundir, þar skortur er á kvóta í þorski? Niðurstaðan er milljarða tap fyrir þjóðarbúið á Íslandi. Hvað eru það mörg göng, hjúkrunarheimili eða vegbætur á landsbyggðinni. Hafró er að valda íslenska þjóðarbúinu gríðarlegu tjóni með aðferðafræði sem hefur ekki skilað neinum árangri í tugi ára, skilið rækjuiðnaðinn og rækjuútgerð eftir brunarústum og mörgum fisktegundum vannýttum, öðrum nánast útrýmt með afráni af risastórum þorskstofnum á Íslandsmiðum. Höfundur vinnur á smábátum og er búsettur í Langanesbyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Landsamband smábátaeigenda hefur réttilega bent á að gríðarlegt magn af kvóta í ufsa fellur niður óveiddur undanfarin ár og veldur tapi upp á tugi milljarða fyrir sjómenn, fiskverkendur og þjóðarbúið. En það skortir eitt veigamikið atriði til að veiða ufsa og það er aukin kvóti í þorski. Atvinnuvegaráðherra hefur undanfarin ár farið nákvæmlega eftir ráðgjöf Hafró. En á sama tíma, hinu megin við miðlínu Íslands og Grænlands eru nágrannar okkar Grænlendingar að gefa út nærri tvöfalt hærri kvóta en þeirra eigin Hafró gefur ráðleggingar um, til að kanna veiðiþol þorskgangna er koma syndandi yfir miðlínuna frá Íslandsmiðum. Landsamband smábátaeiganda ætti frekar að einhenda sér í að hvetja atvinnuvegaráðherra að taka fram fyrir hendurnar á Hafró og gefa út mun meiri kvóta í þorski en Hafró mun koma til með að veita ráðgjöf um fyrir næstkomandi fiskveiðiár. Öðruvísi er ekki hægt að veiða ufsa sem brennur inni á hverju ári. Vonandi tekur Landsambandið áskorun þessari og fer að beita sér í réttmætri og nauðsynlegri gagnrýni á Hafró varðandi stofnmælingu, aðferðafræði og ráðgjöf í þorskveiðum Íslendinga. Að lokum hvet ég alla þá sem hafa áhuga á fiskveiðum á Íslandi og stinga niður penna með hvatningu til atvinnuvegaráðherra um að taka fram fyrir hendurnar á Hafró og gefa út mun meiri aflaheimildir í þorski heldur en Hafró ráðleggur. Af hverju eru Íslensk stjórnvöld að ala upp þorsk á Íslandsmiðum sem er síðan veiddur hinum megin við miðlínu Grænlands og Íslands, þannig að íslenskir sjómenn geta ekki einu sinni veitt aðrar tegundir, þar skortur er á kvóta í þorski? Niðurstaðan er milljarða tap fyrir þjóðarbúið á Íslandi. Hvað eru það mörg göng, hjúkrunarheimili eða vegbætur á landsbyggðinni. Hafró er að valda íslenska þjóðarbúinu gríðarlegu tjóni með aðferðafræði sem hefur ekki skilað neinum árangri í tugi ára, skilið rækjuiðnaðinn og rækjuútgerð eftir brunarústum og mörgum fisktegundum vannýttum, öðrum nánast útrýmt með afráni af risastórum þorskstofnum á Íslandsmiðum. Höfundur vinnur á smábátum og er búsettur í Langanesbyggð.
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar