„Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. maí 2026 11:04 Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrverandi þingmaður Pírata. Vísir/Vilhelm Fyrrverandi þingmaður segir mál manns á Suðurnesjum sem lögregla skaut með rafbyssu sýna fram á að „rafbyssugríma“ lögreglu sé fallin. Almenningi hafi verið talin trú um að mál lögreglu yrðu leyst með minni valdbeitingu en annars þyrfti með notkun rafbyssa, málið sýni fram á hið gagnstæða.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrverandi þingmaður Pírata gerir málinu skil í aðsendri grein á Vísi. Tilefnið eru fréttir af manni sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í vikunni í kirkjugarðinum í Keflavík. Maðurinn hafði hellt yfir sig íkveikjuvökva og beitti lögreglan rafbyssu. Lýsti sjónarvottur því hvernig kviknað hefði í manninum, sem fluttur hefur verið til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans. Var sjónarvottinum gert af lögreglu að eyða myndbandi af handtökunni en lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur fullyrt að engin réttarspjöll verði vegna þessa. Almenningur hafi átt að verða öruggari „Þegar Jón Gunnarsson, þáverandi dómsmálaráðherra tók fyrirvaralausa og ólögmæta ákvörðun um að gefa lögreglu heimild til þess að bera rafbyssur sagði hann okkur að þannig yrði almenningur öruggari. Að þannig yrðu mál lögreglu leyst með minni valdbeitingu en annars þyrfti,“ skrifar Þórhildur Sunna. Vísar Þórhildur Sunna til niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis um að dómsmálaráðherra hafi brotið gegn góðum stjórnsýsluháttum þegar hann tók ákvörðun um aukinn vopnaburð lögreglu án þess að bera málið upp í ríkisstjórn. Sagði Jón við Fréttablaðið í mars 2023 að hann teldi þetta ekki áfellisdóm yfir sinni stjórnsýslu, umboðsmaður hefði komist að þeirri niðurstöðu að hann hefði ekki brotið nein lög. Notkun rafbyssa var heimiluð með breytingum á reglum um valdbeitingu lögreglumanna og beitingu á valdbeitingartækjum í desember 2022. Það var svo í september 2024 sem lögreglan tók þær í notkun. Greint var frá því síðasta mars að lögregla hafi þá dregið rafbyssur fram hundrað sinnum frá því þær voru fyrst teknar í notkun. Þórhildur Sunna segir fulltrúa lögreglunnar, sem talað höfðu hástöfum fyrir því að fá að bera rafbyssur hafi sagt að það væri skárra að fá í sig rafstraum heldur en kylfuhögg. Rafbyssur væru til góða þar sem skárra væri að fá nokkur þúsund volt beint í æð í stað kylfuhöggs. Þurfi að stofna til sjálfstæðs eftirlits með störfum lögreglu „Tilefni þessarar greinar er auðvitað þetta rosalega mál, mál þar sem lögreglan er sögð hafa neytt vitni með hótunum til þess að eyða myndbandsupptöku af atburðum. En það er fleira sem kemur til. Lögreglan hefur um ókomna tíð fengið nokkurn veginn afskiptalaust að stjórna því hvernig fréttir eru sagðir af henni og hvaða orð eru notuð til þess að lýsa háttsemi hennar. Fjölmiðar eru gjarnir á að apa yfirlýsingar upp eftir lögreglu og forðast að spyrja hana gagnrýninna spurninga um framferði sitt.“ Þórhildur Sunna fullyrðir að augljóst dæmi um þetta sé hvernig lögreglu og þáverandi dómsmálaráðherra hafi tekist að sannfæra fjölmiðla um að ekki ætti að kalla rafbyssur rafbyssur, heldur rafvarnarvopn. Hún segir það hafa verið mikilvægan áróðurssigur að fjarlæga orðið byssa úr opinberru umræðu um mjög óvinsæl vopn í huga almennings. „Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni. Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ spyr Þórhildur Sunna. Hún segir það sæta furðu að héraðssaksóknari hafi ekki hafið rannsókn af eigin frumkvæði þegar í stað. „Lýðræði og réttarríki er ekki ókeypis og sofandaháttur gagnvart valdbeitingargræðgi yfirvalda tekur á endanum sinn toll. Hann birtist í brunasárum, líkamsmeiðingum, njósnum um saklaust fólk, barsmíðum á mótmælendum og annars konar valdníðslu. Og þrátt fyrir þrotlausa baráttu sumra er enn ekki búið að stofna til sjálfstæðs eftirlits með störfum lögreglu þó svo að vopnaburður lögreglu og eftirlitsheimildir hennar hafi verið stórauknar á undanförnum árum. Vonandi auðnast okkur að breyta því sem allra fyrst.“
Rafbyssur Lögreglan Tengdar fréttir „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir samtökin hafa bent á að svo virðist sem þekkingarleysi sé innan lögreglunnar þegar hafa þarf afskipti af fólki sem glímir við andleg vandamál. Hann segir óhugnanlegt þegar rafbyssum er beitt líkt og gert var við handtöku í Reykjanesbæ í gær. 19. maí 2026 16:30 Lögreglu hafi stafað hætta af manninum Yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurnesjum segir lögreglumenn hafa tekið upplýsta ákvörðun þegar þeir ákváðu að beita rafvarnarvopni gegn manni sem þakinn var íkveikivökva í morgun. Þá hafi manni verið gert að eyða myndefni af atvikinu í þágu hagsmuna þess sem beittur var rafvopninu, enda hafi hann verið án fata. 18. maí 2026 16:59 „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að beiting rafvarnarvopns við aðstæður sem uppi voru við handtöku í Keflavík í gær sé varasöm og fullyrðir að engin réttarspjöll verði þó vitni að atvikinu hafi verið gert að eyða myndbandi af handtökunni. 19. maí 2026 12:29 Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Sjá meira
„Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir samtökin hafa bent á að svo virðist sem þekkingarleysi sé innan lögreglunnar þegar hafa þarf afskipti af fólki sem glímir við andleg vandamál. Hann segir óhugnanlegt þegar rafbyssum er beitt líkt og gert var við handtöku í Reykjanesbæ í gær. 19. maí 2026 16:30
Lögreglu hafi stafað hætta af manninum Yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurnesjum segir lögreglumenn hafa tekið upplýsta ákvörðun þegar þeir ákváðu að beita rafvarnarvopni gegn manni sem þakinn var íkveikivökva í morgun. Þá hafi manni verið gert að eyða myndefni af atvikinu í þágu hagsmuna þess sem beittur var rafvopninu, enda hafi hann verið án fata. 18. maí 2026 16:59
„Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að beiting rafvarnarvopns við aðstæður sem uppi voru við handtöku í Keflavík í gær sé varasöm og fullyrðir að engin réttarspjöll verði þó vitni að atvikinu hafi verið gert að eyða myndbandi af handtökunni. 19. maí 2026 12:29