Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. maí 2026 15:07 Ódýrasta bensínið er áfram hjá Costco. Vísir/vilhelm Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti af dælu virðist hafa skilað sér að fullu með lægra verðlagi hjá öllum hefðbundnu olíufélögunum. Undantekningin var Costco sem býður þó enn upp á ódýrasta eldsneytið.
Í apríl samþykkti ríkisstjórnin að lækka tímabundið virðisaukaskatt á eldsneyti af dælu úr 24 prósentum í 11 prósent. Markmiðið með aðgerðunum hafi verið að hemja verðbólgu og bregðast við verðhækkunum á olíu vegna stríðsátaka við Persaflóa. Samkeppniseftirlitinu var falið að vakta útsöluverð eldsneytis sérstaklega og tók hagdeild ASÍ sig til og athugaði bensínverð á 246 afgreiðslustöðvum sex smásala eldsneytis. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að lækkunin skilaði sér að fullu hjá Atlantsolíu, N1, Olís, Orkunni og ÓB. „Orkan reið á vaðið og lækkaði verð á sínum stöðvum strax í kjölfar gildistöku laganna. Lækkanir annarra skiluðu sér síðar, og þá jafnan að fullu,“ segir í tilkynningu ASÍ. Álagning hafi verið sögulega há „Mat á hlut olíufélaganna í hverjum seldum lítra bendir til þess að álagning hafi almennt farið lækkandi síðustu vikur,“ segir í tilkynningunni. Hins vegar er bent á það mat ASÍ að álagning á eldsneyti hafi verið sögulega há í aðdraganda upptöku kílómetragjalds og lækkunar vörugjalda. „Lækkunin fellur að hluta til saman við gildistöku tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts á eldsneyti í lok apríl. Þó ber að hafa í huga að þróun eldsneytisverðs ræðst einnig af öðrum þáttum, svo sem heimsmarkaðsverði og gengi krónunnar. Sveiflur milli vikna og fyrirtækja eru því áfram nokkrar.“
Bensín og olía Verðlag ASÍ Neytendur Costco Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira