Ragga frábær í Austurríki og náði öðru sæti Sindri Sverrisson skrifar 22. maí 2026 14:35 Andrea Bergsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir hafa nú lokið tveimur mótum á LET Access í sumar. Golf.is Ragnhildur Kristinsdóttir byrjar golftímabilið af krafti og náði öðru sæti á móti í Austurríki í dag, á LET Access mótaröðinni, næststerkustu mótaröð Evrópu.
Ragga, eins og hún er alltaf kölluð, var önnur af aðeins tveimur kylfingum sem léku samtals undir pari á mótinu sem fram fór á Sudburgenland of the Allegria Golf Resort. Ragga lék samtals á -1 höggi, eftir að hafa leikið á 70 höggum eða pari vallarins í dag, og aðeins Hanna Tauber frá Þýskalandi lék betur en hún lék hvern hringjanna þriggja á -1 höggi, eða samtals á -3 höggum. View this post on Instagram A post shared by The LET Access Series (@letaccess) Ragga endaði höggi á undan þremur kylfingum, frá Frakklandi, Englandi og Þýskalandi, og langefst íslensku kylfinganna þriggja sem spiluðu á mótinu. Hulda Clara Gestsdóttir hafnaði í 23. sæti á +5 höggum og Andrea Bergsdóttir í 42. sæti á +10 höggum. Þær voru ásamt Röggu jafnar í 3. sæti eftir fyrsta hring en færðust svo niður listann. Þetta var annað mót þeirra á LET Access mótaröðinni í sumar en áður hafði Hulda Clara náð 8. sæti á Madaef Ladies Open, Andrea 29. sæti og Ragga 42. sæti. Ragga var hársbreidd frá því að vinna sig inn á Evrópumótaröðina með árangri sínum á LET Access í fyrra og vann þá meðal annars eitt mót, fyrst Íslendinga.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira