Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Valur Páll Eiríksson skrifar 23. maí 2026 11:46 Dr. Sveinn Þorgeirsson, aðjunkt við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Vísir/Bjarni Myndskeið af þriðja flokks leik Stjörnunnar í fótbolta hefur vakið spurningar um áherslur í yngri flokka þjálfun og hlutverk þjálfara. Aðjunkt við Háskólann í Reykjavík segir gagnrýni full harða.
Sjaldan hefur einn leikur í þriðja flokki í fótbolta borið eins mikið á góma og sá milli Stjörnunnar og Fjölnis á dögunum. Fjölnir vann 7-1 þar sem sérkennileg staða markvarðar Stjörnunnar vakti athygli. Myndband úr leiknum vakti mikla athygli og vakti hörð viðbrögð, til að mynda í hlaðvarpinu Þungavigtinni. Dr. Sveinn Þorgeirsson, aðjunkt við íþróttafræðideild HR, tekur til varna fyrir þjálfara Stjörnunnar. „Mér finnst að við eigum að setja starfsemi barna og unglinga í sérstakt samhengi. Þar eigum við að búa til jákvætt uppeldislegt umhverfi fyrir börnin. Við eigum ekki að vera of einbeitt á hver úrslitin eru. Það á að bíða seinni tíma, við eigum að ræða það í tengslum við meistaraflokkana,“ segir Sveinn í Sportpakkanum á Sýn í gærkvöld. „Í starfsemi barna og unglinga eigum við að búa til umhverfi fyrir tilraunir og að reyna á okkur og gera okkar besta, sem ég efast ekki um að leikmenn í þessum leik hafi verið að gera,“ „Við þurfum að standa vörð um það í okkar samfélagi og umhverfi í íþróttunum að bæði þjálfarar og leikmenn hafi rými til að prófa nýja hluti. Stundum þarf að þenja mörkin til að kanna hvað er nýtt og fara inn á nýjar slóðir. Ef við setjum þetta í það ljós þá myndi ég hvetja til svona tilrauna,“ segir Sveinn. Skiljanlegt að sé erfitt að horfa upp á þetta Einhverjir foreldrar hafa hótað því að taka börn sín úr starfi Stjörnunnar vegna málsins. Eru þau að bregðast of harkalega við? „Ég skil alveg tilfinninguna, að þetta er ekkert þægilegt. En ég hugsa að erfiðasta staðan sé að vera þjálfari og leikmaður inni á vellinum að takast á við þetta. Svo má minna sig á að þetta eru íþróttir, það er ekki allt eða ekkert og er ekki allt undir. Þetta á að vera uppbyggileg starfsemi,“ „Svo á endanum myndi ég byrja á því að ræða við strákana. Hvernig líður þeim eftir þetta? Þetta hefur örugglega verið erfitt, en mjög líklega lærdómsríkt líka. En ég held að í þessu, og reyndar í mörgum öðrum aðstæðum líka, mættum við foreldrar aðeins anda djúpt ofan í maga og hugsa hvað er stóra markmiðið í þessu,“ segir Sveinn. Nánara samtal og viðtalið í heild við Svein má sjá í spilaranum að neðan. Klippa: Ræðir umdeildan leik 3. flokks Stjörnunnar
Stjarnan Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira