Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Bjarki Sigurðsson skrifar 23. maí 2026 15:43 Atli Dagur Sigurðsson er hjúkrunarfræðingur á bráðamóttökunni. Aðsend Hjúkrunarfræðingur sem smitaðist af berklum á bráðamóttökunni í desember á síðasta ári segir ekkert hafa breyst á þeim 120 dögum sem hann var á sýklalyfjum vegna sjúkdómsins. Hann segir stjórnvöld þurfa að grípa um taumana, það sé þreytandi að mæta á vakt eftir vakt og ekki geta sinnt sjúklingum eins og best er á kosið.
Atli Dagur Sigurðsson starfar sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í desember smituðust hann og sjö samstarfsmenn hans af berklum. Í janúar byrjaði hann á sýklalyfjum, en ekki þeim hefðbundna tíu daga eða tveggja vikna kúr, heldur 120 daga. Meðferðinni fylgdu ýmsar aukaverkanir, eins og kviðverkir og ógleði, en Atli lýsir kúrnum sem „hundleiðinlegum“. Ekkert breyst Starfsmenn bráðamóttökunnar héldu stóran fund á Grand Hótel í febrúar í kjölfar þess að smitin greindust og sendu frá sér ályktun að honum loknum. Þar voru stjórnvöld gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi og bent á að ástandið versni og versni. Þar ræddi fréttastofa við Atla Dag. „Það eru eiginlega engar sýkingavarnir á bráðamóttökunni. Við erum með alls konar veirupestir, bakteríur og annað sem við getum smitast af og sjúklingar líka. En þarna komu upp þessi berklasmit og þetta er mikill skellur má segja,“ sagði Atli þá. Nú eru fjórir mánuðir liðnir og hvað hefur breyst? „Bráðamóttakan er enn þá yfirfull af sjúklingum og flæðið stoppar aldrei. Fjöldi sjúklinga er enn allt of mikill og álagið er enn gífurlega mikið. Þannig að satt best að segja þá finn ég ekki fyrir neinum breytingum,“ segir Atli. Skorar á ríkisstjórnina Hann segir augljóst að það taki mun lengri tíma að leysa vandann, það sé ekki hægt á nokkrum mánuðum. Hins vegar þurfi einhver að bregðast við. „Það sem maður vill sjá er að ríkisstjórnin grípi boltann og myndi eitthvað plan, eitthvað skipulag tengt heilbrigðiskerfinu. Það er kominn tími til að það sé hlustað á okkur. Okkur fagfólkið sem er að vinna í þessum erfiðu aðstæðum,“ segir Atli. Komi aftur upp berklasmit á spítalanum eru sjúklingar og starfsmenn alveg jafn líklegir til að vera útsettir fyrir smiti og þeir sem greindust í desember. „Enn þá liggur fólk hjá okkur á göngunum. Smitvarnirnar laskast þá. Ég meina, það eru engar smitvarnir þegar við höfum fyllt okkar einangrunarherbergi og höfum engan annan stað en að setja fólk á ganginn. Þetta eru ekkert bara berklar, líka veirupestir, flensur og gubbupestir. Við höfum ekki pláss til að einangra alla,“ segir Atli. Einkennalaus Líkamleg heilsa Atla er ágæt en um var að ræða einkennalausa berkla. „Það er bara lyfjameðferðin sem er leiðinleg og það er náttúrulega grafalvarlegt að það sé verið að setja okkur heilbrigðisstarfsfólk á fjögurra mánaða sýklalyfjagang. Það er enginn brandari,“ segir Atli. Ein stór fjölskylda Fólkið sem vinnur á bráðamóttökunni sé það harðduglegasta og Atli segir ótrúlegt hvernig náð er að leysa úr hlutunum. „Við erum bara ein stór fjölskylda sem reynir að láta hlutina ganga upp og við höfum hvert annað og styðjum við bakið á hvert öðru. Það hjálpar svo mikið að mórallinn þar er ótrúlega góður. En það getur verið mjög þreytandi að mæta á hverja einustu vakt og geta ekki sinnt sjúklingum eins og maður vill gera,“ segir Atli. Bæði sjúklingar og starfsfólk eigi betra skilið. „Ég sem hjúkrunarfræðingur er málsvari sjúklingsins, þannig að ég er hér fyrst og fremst til þess að ræða um öryggi sjúklinga og ég er bara hér sem málsvari þeirra. Þetta gengur ekki lengur og núna þarf, ég ætla þá að impra á því að núna þarf ríkisstjórnin að fara að grípa í taumana,“ segir Atli.
Berklar Landspítalinn Heilbrigðismál Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Sjá meira