Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Jakob Bjarnar skrifar 26. maí 2026 10:41 Sjálfstæðismenn aðdáendur Davíðs ná ekki upp í nef sér af bræði vegna framgöngu Hallgríms Helgasonar rithöfundar í minningarþætti um Davíð. Hannesi Hómsteini er ekki skemmt. vísir Rúv bauð upp á heimildaþátt um Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, í gærkvöldi þar sem farið var yfir feril hans. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður gerði með öðrum handrit og ræddi við samferðarmenn hans. Hún segir þáttinn ekki uppgjörsþátt heldur minningarþátt.
Meðal annarra var vitaskuld rætt við Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor emerítus, einn helsta vin Davíðs og samverkamann, Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra, Friðrik Sophusson fyrrverandi fjármálaráðherra auk fjölda annarra aðdáenda Davíðs. Þá var rætt við pólitíska andstæðinga hans, svo sem Steingrím J. Sigfússon fyrrverandi fjármálaráðherra og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur fyrrverandi formann Samfylkingarinnar og þau nefndu á honum löst en einkum kosti. Og svo var einn viðmælandi sem kom eins og skrattinn úr sauðaleggnum, ef marka má aðdáendur Davíðs – rithöfundurinn Hallgrímur Helgason. Áþreifanleg gremja og hún fer vaxandi Gremjan er áþreifanleg og hún fer vaxandi. Hermann Guðmundsson forstjóri Kemi segir Rúv hafa ákveðið að gera heimildarþátt um Davíð Oddsson. „Maður sem starfaði fyrir fólkið í landinu í nærri 50 ár og breytti samfélaginu okkar til hins betra á svo marga vegu.” Hermann Guðmundsson forstjóri Kemi segir að auðvitað hafi þurft að draga á flot mann sem sem allir Sjálfstæðismenn líta niður á og þótt að þessi maður hafi í engu þekkt Davíð.vísir/vilhelm Hermann segir að þessu hafi tekist að gera skil á 36 mínútum en þátturinn um Vigdísi forseta hafi þó náð 60 mínútum. „Auðvitað þurfti að draga fram viðmælanda sem allir Sjálfstæðismenn líta niður á og þótt þessi maður hafi í engu þekkt Davíð þá fengum við að heyra hans prívat skoðanir eins og þær hefðu eitthvað vægi um manninn.“ Hermann telur að starfsfólki RÚV hljóti að vera létt að þurfa ekki að fjalla meira „um þennan merka mann sem féll frá heldur snögglega.“ Fjöldi athugasemda Áðurnefndur Hannes Hólmsteinn tjáði sig strax að lokinni sýningu þáttarins og honum fannst Hallgrímur setja leiðinlegan blæ á dagskrárgerðina sem hafi verið ágætt vegna gömlu myndanna og ummæla margra, svo sem Þórarins Eldjárns, Kjartans Gunnarssonar og Geirs H. Haarde. Hannes Hólmsteinn er afar ósáttur við það að Hallgrími hafi verið boðið í partíið.vísir/vilhelm „Dómur Hallgríms um valdníðslu Davíðs var sérstaklega ómaklegur vegna þess að enginn stjórnmálamaður hefur gert meira en Davíð til að minnka vald sitt,“ segir Hannes sem er á því að umsögn Steingríms J. hafi verið vitrænni en Ingibjargar Sólrúnar. „Hún er bersýnilega enn með Davíðsheilkennið, sem sumir þjáðust af hér áður fyrr. Hér erum við Davíð á góðri stund.“ Hannes Hólmsteinn er ósáttur en það er ekkert miðað við holskeflu ummæla sem falla á Facebook-síðu hans. Þar eru raddir sem vilja loka RÚV og telja að þau hafi fyrirgert því tilkalli að geta talist hlutlægur miðill. Sorglegt að sjá manninn láta þetta út úr sér Vilhjálmur Egilsson fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að flest það sem Hallgrímur sagði gæfi ástæðu til að þakka Guði fyrir að Davíð hefði verið við völd. Sigurður Kári Kristjánsson er sammála Hannesi. „Botna ekkert í því að þáttagerðarmönnum detti til hugar að kalla Hallgrím til viðtals af þessu tilefni.“ Hallgrímur stimplaði sig út sem marktækur álitsgjafi að mati margra Sjálfstæðismanna sem tjá sig um færslu Hannesar. „Eitt er að vera ósammála verkum stjórnmálamanns en annað að níða manninn persónulega á svona ósvífinn hátt og HH gerði á sínum tíma,“ segir Björg K. Sigurðardóttir, þá með vísan til greinar sem Hallgrímur ritaði 2004 í kjölfar veikinda Davíðs. Og Stefán Friðrik Stefánsson, yfirlýstur Sjálfstæðismaður, er hjartanlega sammála. „Það segir sína sögu að Ingibjörg Sólrún og Hallgrímur eru enn að berjast við öfund í garð Davíðs og með bullandi minnimáttarkennd fyrir honum. Sorglegt lið.“ Og Páll Rúnar Pálsson er, eins og svo margir sem taka til máls á Facebook-síðu Hannesar: „Missti þarna endanlega trú á honum. Ekki það að hún hefði verið mikil fyrir, en sorglegt að sjá þetta þekktan mann, oft á spena þjóðarinnar, láta þetta út úr sér,“ segir Páll Rúnar og þannig gengur dælan. Það vita allir að hann var umdeildur Jóhanna Vigdís er þulur þáttarins og kom að handriti. Hún segir að þau hafi gert þetta innanhúss og Ragnhildur Thorsteinsson hafi verið pródúsent. Áskorun hafi verið að gera þátt um Davíð svo stuttu eftir fráfall hans en hann hafi andast snögglega þar sem enginn vissi til þess að hann væri veikur. „Þetta er ekki uppgjörsþáttur heldur minningarþáttur. Okkur fannst ekki hægt að ræða bara við aðdáendur hans. Það kemur ítrekað fram hversu mikill sigurvegari og forystumaður hann var. En það vita allir að hann var umdeildur,“ segir Jóhanna. Jóhanna Vigdís segir áskorun að gera áferðarfallegan þátt um Davíð svo skömmu eftir fráfall hans. Henni koma viðbrögðin ekki á óvart.vísir/vilhelm Hún segir að þau hafi viljað gera áferðarfallegan þátt og það hafi tekist. Og hún segir að báðar hliðar hafi komið fram, fólk úr ólíkum áttum: „Við ræddum við Kjartan og Hannes sem eru í aðdáendahópnum og svo úr hinni áttinni. Ingibjörg Sólrún sagði að þau hefðu aldrei átt skap saman. Og Steingrímur J., en þeir háðu marga rimmuna, sagði að Davíð hefði aldrei erft það við sig. Það þótti mér merkilegt.“ Viðbrögðin koma Jóhönnu Vigdísi ekki á óvart. „Þú þarft ekki annað en lesa Staksteina dagsins þar sem því er haldið fram að við og Samfylkingin höfum kallað eftir skýrslu um eignarhald útgerðanna. Við höfum fengið góð viðbrögð úr ólíkum áttum. Það má ekki gleyma því. Mér fannst allir tala af virðingu um Davíð,“ segir Jóhanna Vigdís.
Fjölmiðlar Samfélagsmiðlar Andlát Davíðs Oddssonar Kvikmyndagerð á Íslandi Ríkisútvarpið Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Sjá meira