Körfubolti

Grinda­vík endursemur við fjóra leik­menn: Beeman á­fram í gulu

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Abby Beeman hefur verið frábær fyrir Grindavík og varð nýlega sú fyrsta til að gefa tuttugu stoðsendingar í einum leik.
Abby Beeman hefur verið frábær fyrir Grindavík og varð nýlega sú fyrsta til að gefa tuttugu stoðsendingar í einum leik. vísir / anton

Grindavík hefur endursamið við fjóra leikmenn liðsins fyrir komandi tímabil í Bónus deild kvenna í körfubolta. Leitin að nýjum þjálfara stendur enn yfir en nýr maður nálgast.

Þær Abby Beeman, Hulda Björk Ólafsdóttir, Ólöf Rún Óladóttir og Þórey Tea Þorleifsdóttir hafa allar ákveðið að taka slaginn með Grindvíkingum á næsta ári.

Abby Beeman kom til Grindavíkur fyrir síðasta tímabil og var kjörin verðmætasti leikmaður liðsins á lokahófi Grindvíkinga um helgina. Hún var að meðaltali með 21.9 stig og 10.0 stoðsendingar í leik.

Hulda Björk spilaði ekkert á síðasta tímabili en er að komast aftur af stað eftir meiðsli.

Ólöf Rún sneri aftur til Grindavíkur frá Keflavík árið 2023 og var í stóru hlutverki á síðasta tímabili.

Þórey Tea er á sínu þriðja tímabili hjá Grindavík og spilaði að meðaltali tvöfalt fleiri mínútur á síðasta tímabili en tímabilinu þar áður.

Grindavík hefur komist í bikarúrslitin og úrslitakeppni deildarinnar síðustu tvö ár. Á nýafstöðu tímabili féll liðið út eftir oddaleik gegn Njarðvík í undanúrslitum.

Þorleifur Ólafsson lét af störfum þjálfara eftir tímabilið og leitin að eftirmanni hans stendur yfir.

Samkvæmt heimildum Vísis er Pétur Már Sigurðarson í samningsviðræðum við Grindavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×