Innlent

Segir magnað að fá að sjá verk Bjarkar á Lista­hátíð

Smári Jökull Jónsson skrifar
Lára Sóley Jóhannsdóttir er listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík en Björk er ein þeirra sem sýna mun á hátíðinni.
Lára Sóley Jóhannsdóttir er listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík en Björk er ein þeirra sem sýna mun á hátíðinni. Listahátíð í Reykjavík

Listahátíð í Reykjavík verður sett klukkan tvö í dag en hátíðin stendur yfir til 14. júní. Alls eru viðburðir hátíðarinnar um sextíu talsins og flytjendur um þrettán hundruð en Björk Guðmundsdóttir er meðal listamanna sem koma fram á hátíðinni.

Listahátíð Reykjavíkur er haldin í þrítugasta og fimmta sinn en hún var fyrst haldin árið 1970. Hátt í sextíu viðburðir verða haldnir á sextán dögum þar sem um þrettán hundruð listamenn koma fram. Opnunarhátíðin fer fram í Hafnarhúsinu klukkan tvö í dag.

„Þar opnar líka formlega sýning Karin Sander og á dagskrá eru ávörp og brot úr völdum viðburðum hátíðarinnar,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar.

„Svo nær opnunarhátíðin hápunkti þegar skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar sameinast á Hörputorgi. Gestir í Hafnarhúsinu verða leiddir þangað og hljómsveitirnar koma spilandi víða að og sameinast í nýju verki eftir Samúel Jón Samúelsson,“ bætir Lára Sóley við.

Magnað að fá Björk

Klukkan sex í dag opnar sýning Bjarkar Guðmundsdóttur í Listasafni Íslands, samhliða sýningu James Merry sem Björk hefur unnið með lengi.

„Þetta er alveg magnað, bæði að fá að sjá verkin hennar og hans James. Það er í samstarfi við Listasafn Íslands þannig að það er mjög stór viðburður.“

Dagskrá Listahátíðar í Reykjavík er fjölbreytt.Listahátíð í Reykjavík

Hluti af sýningu Bjarkar er nýtt verk af væntanlegri plötu hennar. Lára Sóley segir hátíðina sannkallaða menningarveislu og nefnir sérstaklega klúbb Listahátíðar sem verður starfræktur í Iðnó þar sem fram fara daglegir viðburðir, tónleikar, hagyrðingakvöld og smiðjur.

Spennt fyrir hátíðarlistamanninum

Lára segist eiga erfitt með að velja þann viðburð sem hún er spenntust fyrir.

„Við erum að fá hljómsveit trommuleikara frá Rúanda sem verða með frábæra sýningu á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu.“

Trommuleikarar frá Rúanda verða með tónleika í Borgarleikhúsinu.Listahátíð í Reykjavík

Að sögn Hildar er töluvert af viðburðum hátíðarinnar opnir en nánari upplýsingar um miðasölu má kynna sér á heimasíðu hátíðarinnar.

„Ég er líka mjög spennt því Hildur Guðnadóttir er hátíðarlistamaður þannig að við erum með þrjá viðburði sem tengjast henni auk listamannaspjalls. Ég er líka mjög spennt fyrir fjölskyldudagskrá í Elliðaárstöð og líka í Hörpu. Þannig að það er margt í boði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×