Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Lovísa Arnardóttir skrifar 27. maí 2026 11:54 Bergur Þorkelsson er formaður Sjómannafélags Íslands. Vísir/Vilhelm Hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands hófu á mánudag ótímabundið verkfall á þremur skipum Eimskips sem stendur enn. Eimskip segir það miður að ekki hafi náðst samningar og ekki liggi fyrir umfang tjóns af aðgerðum. Unnið hafi verið að því að lágmarka áhrif verkfallsins á viðskiptavini.
Bergur Þorkelsson, formaður Sjómannafélags Íslands, segir enn töluvert á milli samningsaðila. Deiluaðilar funduðu síðast í gær. Deiluaðilar funduðu hjá ríkissáttasemjara í síðustu viku en ekki hefur verið boðað til annars fundar þar eða á milli deiluaðila, Eimskips, Samtaka atvinnulífsins og Sjómannafélagsins. Verkfallið tekur til gámaskipanna Brúarfoss, Dettifoss og Selfoss. Bergur segir ekki tekist á um laun í kjaradeilunni heldur mönnun skipanna og þá sérstaklega að Eimskip hafi sagt upp íslenskum skipverjum í fyrra og í staðinn leigt erlent skip með erlendri áhöfn. „Þetta snýst um mönnun, þeir seldu skip í fyrra og sögðu upp heilli áhöfn, íslenskri, og leigðu skip með erlendri áhöfn. Það er verið að skipta út.“ Alls reki Eimskip níu skip og aðeins þrjú þeirra séu nú mönnuð íslenskri áhöfn. Erlendar áhafnir séu með töluvert lægri laun en íslenskir sjómenn og það hafi einnig áhrif. „Við viljum tryggingu fyrir mönnun á ákveðnum fjölda skipa, með íslenskum áhöfnum. Við erum að verja pláss íslenskra sjómanna,“ segir Bergur í samtali við fréttastofu. Hefur áhrif á siglingaáætlun Í tilkynningu frá Eimskip á mánudag, þegar verkfall hófst, kom fram að verkfallið myndi hafa áhrif á siglingaáætlun og þjónustu félagsins en að unnið hefði verið markvisst að því að undirbúa þessa sviðsmynd til að lágmarka truflanir á þjónustu við viðskiptavini eins og kostur er. „Hafnarstarfsemi og önnur starfsemi félagsins er í eðlilegum farvegi. Í síðustu viku náðist samkomulag milli Samtaka atvinnulífsins (SA), fyrir hönd Eimskips, og SÍ vegna hafnarverkafólks í Sundahöfn og var boðuðu verkfalli þar aflýst,“ segir í tilkynningunni og að viðræður um laun og kjör háseta og bátsmanna standi enn yfir með milligöngu ríkissáttasemjara. „Eimskip þykir miður að samningar hafi ekki náðst áður en til verkfalls kom og vonast til að samningar náist sem fyrst,“ segir að lokum. Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskip, sagði í viðtali við mbl.is í gær að stefna fyrirtækisins væri að reka blandaðan flota og að allir sjómenn á þeirra eigin gámaskipum, Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi, séu ráðnir samkvæmt íslenskum kjarasamningum. Hann sagði óljóst hversu mikið tjón yrði af aðgerðunum.
Kjaramál Eimskip Skipaflutningar Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira