Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Sindri Sverrisson skrifar 27. maí 2026 21:18 Aron Elí Sævarsson skoraði eitt marka Aftureldingar sem er nú komin upp í 2. sæti Lengjudeildarinnar. vísir / anton Fylkir og Afturelding eru í tveimur efstu sætum Lengjudeildar karla í fótbolta eftir fjöruga sjöttu umferð í kvöld.
Fylkismenn unnu sinn þriðja deildarleik í röð eftir að hafa einnig skellt FH í Mjólkurbikarnum og eru nú með 15 stig á toppnum. Þeir unnu 3-0 gegn Leikni í grannaslag í Árbænum í kvöld þar sem Guðmundur Tyrfingsson skoraði tvennu og Guðfinnur Þór Leósson eitt mark. Afturelding fagnaði 3-1 sigri í Grindavík þar sem Joacim Holtan og Aron Elí Sævarsson komu gestunum í 2-0 í fyrri hálfleik. Rafael Victor minnkaði muninn á 56. mínútu en Óðinn Bjarkason skoraði svo þriðja mark Aftureldingar í kjölfarið og þar við sat. Afturelding er því aðeins tveimur stigum á eftir Fylki og hefur nú unnið fimm leiki í röð í deild og bikar eftir óvæntan skell gegn ÍR og jafntefli við Völsung í fyrstu leikjum tímabilsins. Standings provided by Sofascore Andri Freyr með tvennu og sigurmark táningsins Þróttur dróst aftur úr í toppbaráttunni eftir 3-2 tap gegn Gróttu á heimavelli, þar sem Þróttarar komust tvisvar yfir. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson og Örn Bragi Hinriksson skoruðu mörk Þróttar en í bæði skiptin svaraði Andri Freyr Jónasson fyrir Gróttu. Það var svo hinn 16 ára gamli Mattías Kjeld, sem skoraði tvennu gegn Vestra í síðustu umferð, sem tryggði Gróttu sigur með marki korteri fyrir leikslok. Ægismenn nálgast Leikni Ægir vann svo sinn fyrsta deildarsigur á tímabilinu og það 4-1 gegn ÍR, þar sem Jordan Adeyemo skoraði tvö mörk og þeir Nikola Kristinn Stojanovic og Atli Rafn Guðbjartsson eitt mark hvor en Bergvin Fannar Helgason minnkaði muninn í 2-1 úr víti á 71. mínútu. Ægismenn eru enn í fallsæti en nú með 4 stig, tveimur á eftir Leikni og tveimur fyrir ofan botnlið Völsungs sem fyrr í kvöld tapaði 1-0 gegn HK á sama tíma og Njarðvík vann Vestra 3-0 á Ísafirði.
Lengjudeild karla Fylkir Leiknir Reykjavík Afturelding UMF Grindavík Þróttur Reykjavík Grótta Ægir ÍR Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira