„Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. maí 2026 08:06 Jakub Mensik féll í yfirlið eftir leik. Marleen Fouchier/BSR Agency/Getty Images Tékkneski tenniskappinn Jakub Mensik féll í yfirlið eftir að hafa unnið leik á Opna franska meistaramótinu í gær. Hann segir það algjört rugl að spila tennis í þessum hita.
Hitabylgja hefur sett svip sinn á lönd Evrópu síðustu daga og í París er óvenju heitt miðað við árstíma. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður náði Mensik samt að vinna leikinn. Hann var greinilega kominn með krampa í fæturna áður en hann gaf síðustu uppgjöf leiksins en smellhitti boltann og fagnaði sigri gegn Mariano Navone. Leikurinn entist í fjóra klukkutíma og 41 mínútu. Lokatölur 6-3, 2-6, 6-4, 1-6, 7-6 (13-11). FIGHTING UNTIL THE LAST DROP OF ENERGY 😤#RolandGarros pic.twitter.com/fTkGv1vg6a— Roland-Garros (@rolandgarros) May 27, 2026 Eftir leikinn var Mensik algjörlega örmagna. Hann féll í yfirlið og lá á vellinum í nokkrar mínútur meðan læknateymi hlúði að honum. No. 26 Jakub Mensik collapsed after a 4 hour 41 minute match with Mariano Navone 😳 pic.twitter.com/76kDoPAbWh— TNT Sports U.S. (@TNTSportsUS) May 27, 2026 Eftir að hafa fengið handklæði um hausinn og íspakka á háls og bringu gat Mensik staðið upp. Hann reyndi þá að labba inn í búningsklefa en virtist aftur falla í yfirlið og var rúllað inn í hjólastól. „Líkaminn slökkti bara á sér,“ sagði Mensik við Sky Sports. „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita og sérstaklega þegar sólin er hæst á lofti. Að vera þarna úti í meira en fjóra og hálfan klukkutíma, það er bara algjör bilun. Meira að segja með pásunum, við fáum svo lítinn tíma. Þú færð bara eina mínútu og þegar þú ert sestur eru svona þrjátíu sekúndur eftir af pásunni. Það er ekki mikið sem þú getur gert til að kæla þig niður á þeim tíma,“ sagði Mensik en honum var einmitt tvisvar refsað fyrir að taka sér of langt hlé. „Dómarinn í dag, og það sem gerðist síðan eftir leik. Það er kannski best að ég haldi mínum skoðunum fyrir sjálfan mig en svona framkomu á ég erfitt með að virða.“ Mensik er í 26. sæti heimslistans og er síðasti maðurinn sem vann Jannik Sinner, í Doha í febrúar, en efsti maður heimslistans hefur ekki tapað leik síðan. Tékkinn vonast nú til að jafna sig af hitaslaginu í tæka tíð fyrir leik sinn í þriðju umferð gegn Alex De Minaur á morgun.
Tennis Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið Viktor Gísli framlengir við Barcelona FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Sjá meira