Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka BL og Ragnheiður Tryggvadóttir 29. maí 2026 08:32 Stórskemmtilegur sunnudagsbíltúr á Land Rover Discovery D350 Adventure. Mín fyrstu kynni af Land Rover má rekja aftur til níunda áratugarins og lengst upp í sveit. Skólabíllinn minn var sería II, blár og toppurinn hvítur, afi átti ljósan með rauðum sætum og ég man eftir fleirum, grænum, brúnum, löngum og stuttum. Annar hver bóndi átti Land Rover úr seríu I og II enda landbúnaðartrukkur par exelans. Leiðir mínar og Land Rover hafa þó lítið legið saman síðan þá. Það var því frekar spennandi að setjast upp í splunkunýjan Discovery 5, Adventure.
Þeir eiga ekki mikið sameiginlegt, gamli skólabíllinn minn og þessi þótt grunnhugmyndin sé enn sú sama, að komast nánast hvert sem er. Þessir gömlu voru ekki hannaðir fyrir lúxus, þeir voru vinnuvélar fyrir fólk sem þurfti að komast leiðar sinnar, sama hvort það lá vegur þangað eða ekki, og jafnvel með búfénaðinn aftur í. Kindur bannaðar í þessum Land Rover Kindum verður seint hleypt upp í Diskóinn. Hann er leðurklæddur lúxusjeppi með sætum fyrir sjö manns og fimm Isofix-festingum fyrir barnastóla; verkfræðingurinn átti greinilega mörg börn. Rafdrifin fram- og aftursæti og ökumannssætið er með minni. Helstu aðgerðum er stýrt gegnum 11,4 tommu snertiskjá og tökkum í stýrinu og milli sæta. Meridian-hljómkerfið fyllir farþegarýmið af tónlist við hæfi og aksturinn er afslappaður með Adaptive Cruise Control. Og ef íslenskt veður ákveður að minna á sig er hægt að ræsa forhitunina úr símanum áður en lagt er af stað og þá er bíllinn búinn 360 gráðu þrívíddarmyndavélakerfi sem gerir jafnvel þrengstu bílastæðin niðri í bæ viðráðanleg. Þessi bíll er jafnt á heimavelli í daglegum snúningum borginni og uppi á hálendi því til viðbótar við lúxusinn er hann svakalegur torfærutrukkur. Torfærutrukkur Bíllinn sem ég fékk að prófa er Land Rover Discovery D350 Adventure en Adventure-útgáfan kemur með upphækkun, 32 tommu dekkjum, stigbrettum og aurhlífum svo hann lúkkar hrikalega töff. Loftfjöðrunin getur hækkað bílinn svo 30 sentímetrar eru undir lægsta punkt og þá er hann búinn vaðvörn svo ég get plægt mig í gegnum 90 sm djúpt vatn ef mér sýnist. Millikassi með háu og lágu drifi ásamt sjálfvirkri miðdrifslæsingu og læsingu í afturdrifi tryggir að Discovery skríður yfir torfærur sem flestir myndu frekar nálgast í gönguskóm með stafi. Þriggja lítra sex strokka dísilvélin skilar 350 hestöflum og hann getur dregið allt að 3.500 kíló sem sagt stórt hjólhýsi, hraðbát eða heilan lítinn sumarbústað! Og hvað gerir miðaldra frú þegar hún fær slíkan trukk í hendurnar? Hún skottast yfir Hellisheiðina á blómamarkað í Hveragerði. Svo ansi þægilegt að vera á svona stórum bíl til að koma hávöxnum trjáplöntum fyrir. Fletti bara niður öllum aftursætunum og skutlaði þessu inn. Svo rúllaði ég í Borgarnes í sparifötunum og fór í leikhús. Báðir þessir rúntar runnu auðvitað afar ljúflega, Cruse Control sá til þess að ég þurfti nánast ekkert að hafa fyrir þessu en þar fyrir utan er þessi bíll virkilega mjúkur í akstri þó að hann sé fyrirferðarmikill. Hann bregst eiginlega við eins og lipur fólksbíll. Svo sat ég auðvitað talsvert hærra en venjulega og gat horft yfir umferðina í kringum mig sem var gaman. En svo var kominn tími á eitthvað annað en malbikað undirlag. Stefnan var sett út fyrir borgarmörkin í átt að Krýsuvík í leit að krefjandi aðstæðum. Flestir spennandi slóðar voru reyndar rammlega lokaðir, „óviðkomandi bannaður aðgangur“, „sektir við utanvegaakstri“. Ég fann einn opinn gegnum hraunið áður en ég endaði aftur á malbikinu. Hvers átti Diskóinn að gjalda? Loks rak ég augun í skilti sem sagði „Illfær vegur“! Nú vorum við að tala saman. Diskóinn hafði hagað sér eins og kurteis gestur í borginni en nú var hann kominn heim. Með einum smelli er hægt að hækka hann upp svo ég gerði það auðvitað, þó torfærurnar fram undan væru kannski ekki þær allra svakalegustu, og svo flaut ég hreinlega yfir grófan malarveginn. Það var dálítið gaman og ég leyfði mér að spýta aðeins í, af því það var hægt án þess að finna mikið fyrir holunum. Dísildrunurnar gerðu mikið fyrir stemninguna og settlegir skreppitúrar í Hveragerði voru nú löngu gleymdir. Ég brunaði gegnum beygjurnar eins og rallýökumaður og hægði ekki á mér þó að holur væru fram undan. Ég blússaðist yfir pollana svo gusurnar gengu yfir bílinn. Diskóinn tók fullan þátt í hasarnum með mér og lét allt eftir mér en þó kom að því að hann pípti á mig þegar leirvatnið frussaðist yfir alla skynjara. Ég hægði aðeins á mér en áfram héldum við og svifum yfir mjúka sandpytti, djúp hjólför, drullu og grjót. Svona eiga sunnudagsbíltúrar að vera. Klippa: Reynsluakstur Land Rover Discovery D350 Adventure Eins og sófasett á hjólum Vegurinn sem blái skólabíllinn ók með okkur krakkana í gamla daga var lítið skárri en þessi. Á bekkjunum aftur í hristumst við nánast í sundur í hverri holu enda fjöðrunin í þeim bílum hönnuð til að lifa af kindagötur og stórgrýti en ekki til að dekra við hryggjaliðina í farþegum. Discovery 5 Adventure er úr allt öðrum heimi. Loftfjöðrunin gleypir holurnar svo bíllinn flýtur yfir ójöfnurnar og sætin eru svo þægileg að ég gæti allt eins setið í Lazy Boy á hjólum. Skynsamur ferðafélagi Discóinn er ekki einhver glannalegur torfærustælatrukkur sem vill ekkert frekar en sýna hvað hann getur. Þetta snérist ekki um að stíga allt í botn. Ég upplifði hann frekar eins og traustan og yfirvegaðan ferðafélaga, þennan sem mætir með áttavita og aukapeysu í ferðina. Hann kemst allt og veit af því en er vel til í að skutlast með miðaldra frú eftir blómum til Hveragerðis og í menningarlega leikhúsferð milli þess sem hann rúllar yfir illfæra malarvegi og polla á við stöðuvötn. Hann myndi sóma sér frábærlega í minni heimasveit þar sem malarvegurinn er enn sá sami og skólabíllinn ók forðum daga og yrði flottur í smölun uppi á afrétt, kindurnar fengju þó ekki far. Fyrir fólk sem vill geta keyrt börnin á æfingu á mánudegi, dregið hjólhýsi á föstudegi og hossast upp á hálendið þess á milli er Diskó einn flottasti fjölskyldu- og ferðabíllinn á markaðnum. Það þarf reyndar að eiga dálítið í veskinu, hann kostar 22.990.000 krónur. Um að gera samt að panta reynsluakstur og prófa, það er svakalega gaman.
Bílar Ferðalög Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Land Rover veisla á laugardaginn Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Greiðsluáskorun „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Sjá meira