Ferðalög

Ferðalög

Greinar um ferðalög, ferðasögur og frábæra staði til að heimsækja.

Fréttamynd

Sólin sest á Guide to Europe

Ferðaskrifstofunni Guide to Europe hefur verið lokað. Frá þessu er greint á vefsíðunni guidetoeurope.eu. Þar segir að eftir áralanga vegferð við að aðstoða ferðalanga við að uppgötva töfra Evrópu hafi verið tekin sú erfiða ákvörðun að loka.

Viðskipti innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Þessi snillingur er náttúru­lega ó­trú­legur“

Njarðvíkingurinn Hreinn Bergmann Óskarsson gerði sér lítið fyrir og fór átta mismunandi strætóferðir þriðjudaginn síðasta, þann 21. apríl. Þá fór hann meðal annars í læknisheimsókn og með heyrnartæki í viðgerð. Hreinn er lögblindur og með skerta heyrn eftir að hafa lent í slysi en lætur það ekki stoppa sig á nokkurn hátt. Dóttir hans birti á dögunum færslu þar sem hún reifar nýjustu ferðasögu pabba síns.

Innlent
Fréttamynd

Hvað veistu um... Tenerife?

Tenerife er stærsta eyjan í Kanaríeyjum og tilheyrir Spáni. Eyjan er þekkt fyrir hlýtt loftslag allt árið um kring, fallegar strendur og fjölbreytta náttúru sem gerir það að verkum að þetta er einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna, ekki síst Íslendinga.

Lífið
Fréttamynd

Ís­lensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upp­lifun gesta

Þegar gestir skrá sig inn á hótel eða gististað eru það oft litlu atriðin sem sitja eftir í minningunni þegar þeir eru komnir aftur heim. Hvernig herbergið lítur út, hvernig það ilmar og ekki síst hvernig gestir sofa um nóttina. Fyrir ferðaþjónustuna skiptir þessi upplifun miklu máli, enda geta þægindi og gæði rúmfatnaðar haft bein áhrif á umsagnir og ánægju gesta.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Var rænd af barnahópi á Filipps­eyjum

Sambandsslit í byrjun árs 2023 urðu vendipunktur í lífi Láru Borgar Lárusdóttur. Hún ákvað að hætta að bíða eftir „réttum“ tíma og hélt ein af stað út í heim. Á meðan á ferðinni stóð sagði hún upp starfi sínu og ákvað að líta á óvissuna sem tækifæri. Balí varð fyrsta af þremur stórum „sóló“ ferðalögum sem síðar leiddu hana um Suður-Ameríku og Asíu. Í dag deilir hún reynslu sinni reglulega á samfélagsmiðlum þar sem hún veitir innsýn í bæði frelsið og áskoranirnar sem fylgja því að ferðast ein.

Lífið
Fréttamynd

Spilaðu golf allt árið með Evrópu­ferðum

Fyrir þá fjölmörgu Íslendinga sem elska golfíþróttina er fátt skemmtilegra en að skipta vetrarkuldanum út fyrir sól, þægilega hafgolu og fagurgræna golfvelli í Suður Evrópu. Á meðan dimmir dagar og frost ráða ríkjum heima býðst kylfingum að leika á glæsilegum völlum á Spáni, í Portúgal eða á Gran Canaria þar sem aðstæður eru eins og best verður á kosið.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Fékk yfir hundrað skila­boð á dag

„Ég er mjög óhrædd týpa og lifi svolítið eftir því að allt verði alltaf í lagi. Ég kippi mér ekki upp við margt,“ segir hlauparinn og markaðsstýran Rakel María Hjaltadóttir sem var að koma úr rosalegri ævintýraferð þar sem hún heimsótti fjölda landa í Afríku með ástinni sinni Guðmundi Lúther. Hún ræddi við blaðamann um hæðir og lægðir ógleymanlegrar ferðarinnar.

Lífið
Fréttamynd

Á leið á flug­völlinn þegar fluginu var flýtt

Aldísi Leoní Rebora brá heldur betur í brún í lok janúar þegar hún fékk tölvupóst um að hún hefði einungis fimmtíu mínútur til að ná flugi til London. Flugið var það fyrsta á löngu ferðalagi frá Íslandi til Ástralíu þar sem hún stundar nám. Sannarlega engin óskabyrjun.

Lífið
Fréttamynd

Vinkonuferð til Ís­lands tók ó­vænta stefnu

Avery Francis fór í stelpuferð til Íslands, eftir ár sem hún lýsir sem því versta í sínu lífi. Skipbrot í starfi, kulnun og áföll í einkalífi höfðu tekið sinn toll og hún hafði verið einhleyp í sex ár. Hún var ekki að leita að sambandi. Síðasta kvöldið í ferðinni kynntist hún íslenskum manni í miðbæ Reykjavíkur og þar kviknaði eitthvað óvænt. Þau hittust aftur ári síðar, og það fyrir einskæra tilviljun. Nú eru þau hjón og Avery býr hér og skipuleggur kvennaferðir til Íslands, sem hún kallar besta stað í heimi.

Lífið
Fréttamynd

Drauma­ferð til Kína um páskana

Það er ekki auðvelt að lýsa Kína í stuttu máli. Kína, sem er eitt stærsta ríki heims og nær yfir fimm tímabelti, er land ótrúlegra andstæðna, mannlífs, menningar og náttúrufegurðar. Þar má finna nútímalegar stórborgir og sveitasælu fortíðarinnar. Kínversk matargerð er fyrir löngu heimsþekkt og þar er úrvalið meira en margan grunar. Allt þetta og meira til stendur ferðalöngum til boða í 12 daga ferð Úrvals Útsýnar til Kína dagana 29. mars til 9. apríl.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Vís­bendingar um gerviverktöku í geiranum

Vísbendingar eru um gerviverktöku meðal leiðsögumanna og hópbifreiðastjóra samkvæmt vinnustaðaeftirliti ASÍ. Þeir sem starfi sem slíkir séu með skerta réttarstöðu og tapi á grundvallarréttindum. Tugir ferðaþjónustufyrirtækja voru ekki skráð á fyrirtækjaskrá Skattsins.

Innlent
Fréttamynd

„Ég er pott­þétt ekki á leiðinni til Ís­lands“

Hvernig lifir maður af lífeyrinum sínum á Íslandi án þess að eiga fasteign? Fyrir Braga Jónsson var svarið einfalt – hann fór. Þegar hann hætti að vinna árið 2022 blasti við raunveruleiki sem margir eldri Íslendingar þekkja: hár húsnæðiskostnaður, dýr framfærsla og lítið svigrúm. Í stað þess að reyna að láta dæmið ganga upp ákvað Bragi að nýta sér óhefðbundna lausn.

Lífið
Fréttamynd

Drauma­ferðin gæti verið nær en þú heldur

Úrval Útsýn býður upp á fjölmargar spennandi ævintýraferðir í vetur og í vor. Meðal þeirra eru ferðir til Óman og Dubai í febrúar, til Japans í mars og til Egyptalands í maí. Allar þrjár ferðirnar hafa fengið góðar viðtökur meðal landsmanna og því þurfa áhugasamir að bregðast skjótt við til að tryggja sér pláss.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Setja stefnuna á seinni hluta árs

Forsvarsmenn Niceair 2.0 reikna með að fyrsta áætlunarflug félagsins verði flogið á seinni hluta ársins. Þeir sem þegar áttu bókað flug með félaginu fá það endurgreitt auk inneignarnótu. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Við­skila í London eftir að hafa hent vega­bréfinu í ruslið

Íslensk kona á leið til Ástralíu með syni sína tvo lenti í einni stærstu martröð ferðalangsins þegar vegabréf eldri sonarins endaði í ruslinu á flugvelli í Lundúnum. Þau rótuðu í tunnunni en þá var vegabréfið horfið. Leiðir skildu, móðirin og yngri sonurinn flugu áfram en sá eldri varð eftir með síma, hleðslutæki og einbeittan vilja til að endurheimta vegabréfið.

Ferðalög
Fréttamynd

Vilja skoða samfélagsmiðla ís­lenskra ferða­manna

Íslendingar á leið til Bandaríkjanna í frí gætu bráðum þurft að veita Bandaríkjamönnum aðgang að samfélagsmiðlafærslum sínum fimm ár aftur í tímann. Einnig gætu ferðamenn frá Íslandi og öðrum ríkjum þurft að senda inn myndir af sér, ýmis sýni og mikið af upplýsingum um fjölskyldumeðlimi, svo eitthvað sé nefnt.

Erlent