„Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 30. maí 2026 10:00 Rebekka Jóelsdóttir, fjármálastjóri Mílu, segir hreyfingu á morgnana setja hausinn sinn í réttan gír fyrir daginn. Þó er hún að reyna að sýna sjálfri sér meiri mildi og leyfa sér stundum að sofa aðeins lengur á morgnana. Vísir/Vilhelm Rebekku Jóelsdóttur, fjármálastjóra Mílu, finnst hún vera hrikalega handlagin heima fyrir. Hennar nánustu eru ekki endilega sama sinnis. Þegar daginn fer að lengja riðlast svefntíminn á kvöldin.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég vakna á alls konar tímum og það veltur á dagskrá dagsins hvenær. Oftast er ég farin á fætur frá 6:30 og dríf mig þá í ræktina, en suma daga drattast ég ekki fram úr fyrr en rétt fyrir 8.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Minn dagur byrjar á hreyfingu en ég fer í ræktina tvisvar til þrisvar sinnum í viku með vinkonum mínum. Það kemur svo fyrir að ég skottast upp á Úlfarsfell með Náttúruhlaupum á þriðjudögum fyrir vinnu. Þessi hreyfing setur hausinn á mér í réttan gír fyrir daginn en ég er líka að reyna að sýna mér aðeins meiri mildi og hlusta á líkamann og bara sofa út ef þannig liggur á mér.“ Á skalanum 0-10, hversu handlaginn ertu heima fyrir? Þetta er mjög góð spurning – bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu? Ég vil nefnilega meina að ég sé alveg hrikalega handlagin og praktísk en fæ reglulega vinsamlegar en jafnframt mjög ákveðnar ábendingar frá mínum nánustu um að ég sé ekki menntaður rafvirki, pípari eða múrari. Með háskólanáminu vann ég nokkra mánuði í byggingarvinnu til að safna mér pening og þar lærði ég nú ýmislegt eins og að járnabinda. Mér finnst lítið mál að henda hillu upp á vegg eða skipta um vatnslás – en ég er samt með mann í þessu núna.“ Rebekka nýtir sér það fyrir skipulagið að vera mjög markmiðadrifin að eðlisfari. Rebekka segir samvinnu teyma lykilatriði en í daglegu ati finnst henni mikilvægast að halda fókus á réttu verkefnunum.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Ég er að vinna hjá Mílu sem á og rekur víðtækt ljósleiðara-, örbylgju- og farsímanetskerfi. Við erum búin að vera í miklu umbreytingarferli og höfum fjárfest fyrir 14 milljarða síðastliðin þrjú ár til að mæta vaxandi þörfum viðskiptavina okkar og þeirri framþróun og tækniframförum sem heimurinn stendur frammi fyrir. Við erum á fullu núna í sumar að klára ljósleiðaravæðingu vítt og breitt um landið og þar af leiðandi að undirbúa lokun koparkerfis. Samhliða þessu erum við með mörg spennandi verkefni í gangi sem snúa að því að bæta þjónustuupplifun viðskiptavina okkar.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég er partur af frábæru teymi á fjármála- og rekstrarsviði Mílu þar sem samvinna er í fyrirrúmi. Skipulagið er því unnið með deildarstjórum á sviðinu og stillum við okkur saman vikulega og ræðum forgangsröðun. Ég lærði það hjá Marel, sem var með um 8.000 starfsmenn í 30 löndum, að samvinna og skipulag eru lykill að árangri, ánægðu starfsfólki og þar með ánægðum viðskiptavinum. Ég er sjálf mjög markmiðadrifin í vinnu og í þessu daglega ati finnst mér mikilvægt að við höldum fókus á réttu verkefnin sem styðja við stefnuna okkar og þau lykilmarkmið sem við höfum sett okkur hjá Mílu.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Þar sem ég tek daginn snemma reyni ég að vera komin í rúmið frekar snemma um tíu. En svo held ég að ég sé bara eins og flestir Íslendingar; um leið og dagurinn fer að lengjast þá fyllist maður af einhverri endalausri orku og ég gæti jafnvel ákveðið að fara að reita arfa í stað þess að eyða tímanum í svefn.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, er einn þeirra sem er oftast vaknaður á undan klukkunni en segist þó hafa breyst frá því að vera algjör B-maður yfir í að vera blanda af A og B. Þessi dægrin er Ingvar að lesa bók um ömmu sína fyrir svefninn. 23. maí 2026 10:02 Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Halldóra Skúladóttir, stofnandi Kvennaráðs og ráðgjafi vinnustaða varðandi breytingaskeiðið, segist fá svo mikið dópamínbúst af því að strika yfir kláruð verkefni á listanum að stundum skrifar hún niður hluti bara til að geta strikað yfir þau. 16. maí 2026 10:01 Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og sjóliðsforingi, á fjögur börn en er afar morgunsvæfur. Það sem í raun bjargar morgnunum heima fyrir er árisul og góð eiginkona en almennt er Aríel síðan svo rútínufastur að meira að segja sömu fötin eru keypt aftur og aftur í verslunum. 9. maí 2026 10:02 Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Þegar Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar, var unglingur fannst henni leikarinn Johnny Depp svo sætur að hún átti stundum erfitt með að anda. Ólíkir karakterar á heimilinu setja skemmtilegan svip á morgunvenjur heimilisins. 2. maí 2026 10:03 Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, er vaknaður eldsnemma á morgnana og rýkur þá beint af stað á æfingu. Viðurkennir þó að fara of seint að sofa á kvöldin og væri alveg til í að festa það betur í rútínunni að ná að anda djúpt, hugleiða og rækta þakklætið á hverjum degi. 18. apríl 2026 10:01 Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Sjá meira
Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, er einn þeirra sem er oftast vaknaður á undan klukkunni en segist þó hafa breyst frá því að vera algjör B-maður yfir í að vera blanda af A og B. Þessi dægrin er Ingvar að lesa bók um ömmu sína fyrir svefninn. 23. maí 2026 10:02
Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Halldóra Skúladóttir, stofnandi Kvennaráðs og ráðgjafi vinnustaða varðandi breytingaskeiðið, segist fá svo mikið dópamínbúst af því að strika yfir kláruð verkefni á listanum að stundum skrifar hún niður hluti bara til að geta strikað yfir þau. 16. maí 2026 10:01
Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og sjóliðsforingi, á fjögur börn en er afar morgunsvæfur. Það sem í raun bjargar morgnunum heima fyrir er árisul og góð eiginkona en almennt er Aríel síðan svo rútínufastur að meira að segja sömu fötin eru keypt aftur og aftur í verslunum. 9. maí 2026 10:02
Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Þegar Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar, var unglingur fannst henni leikarinn Johnny Depp svo sætur að hún átti stundum erfitt með að anda. Ólíkir karakterar á heimilinu setja skemmtilegan svip á morgunvenjur heimilisins. 2. maí 2026 10:03
Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, er vaknaður eldsnemma á morgnana og rýkur þá beint af stað á æfingu. Viðurkennir þó að fara of seint að sofa á kvöldin og væri alveg til í að festa það betur í rútínunni að ná að anda djúpt, hugleiða og rækta þakklætið á hverjum degi. 18. apríl 2026 10:01