Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar 28. maí 2026 23:46 Það er stundum sagt að gremja sé eins og eitur sem tekið er inn í þeirri von að einhver annar hafi illt af. Sú samlíking hefur leitað á mig undanfarna daga í allri umræðunni um myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur - og ekki síst viðbrögðum Miðflokksmanna. Í pólitík er auðvelt að láta gremjuna verða drifkraft. Hún getur sameinað fólk til skamms tíma, skapað háværar fyrirsagnir og kveikt sterkar tilfinningar. En hún byggir sjaldnast neitt upp. Hún grefur frekar skurði milli fólks og gerir samfélagið kaldara og tortryggnara. Gremjan er eins og skólfa - aðeins ein leið og það er niður. Sér grefur gröf þótt grafi Miðflokksmenn hafa óhikað beint spjótum sínum að hópum eða hegðun sem þeir telja óviðeigandi jafnvel ósækilega í okkar samfélagi. Það er erfitt að greina aðrar ástæður fyrir þeim skotmörkum en gremju og lúmska ást á sundrungu, sem ætlað er að ýfa upp andúð, átök og dýpka ömurlegar skotgrafir - kynda undir menningarstríði - sem virtist á köflum ætla að takast. En viðbrögðin við þessari pólitík hafa líka verið athyglisverð eins og nýlega hefur komið í ljós. Hildur Björnsdóttir hefur talið meiri ástæðu til að forðast upphlaup Miðflokksins en að óttast nöldrið í Vókinu - og að mínu mati skynsamlegt. Með því að hafna samstarfi við Miðflokkinn hefur hún mögulega skapað ákveðinn velvilja meðal Samfylkingarfólks, sem er jú fjölmennasti hópurinn í minnihlutanum og jafnvel annarra á vinstri vængnum. Þannig geta talist auknar líkur á breiðari samvinnu í borgarstjórn, sem að sögn Hildar er markmiðið. Taktu tvær grafir Það segir sína sögu að síðast þegar ég vissi hafði aðeins einn fulltrúi Miðflokksins komist í meirihluta í bæjar- og sveitarstjórnum landsins - þrátt fyrir meintan “stórsigur” í kosningunum. Það eru mikil tíðindi. Þau benda til þess að þrátt fyrir hávaðann í umræðunni sé meirihluti fólks ekki tilbúinn að byggja stjórnmál sín á upphrópunum og sundrungu. Þess vegna hefur þessi umræða í raun styrkt trú mína á okkur Íslendingum. Við erum ekki kjánar, druslur eða gungur - við veljum frjálslyndi fram yfir stjórnlyndi þegar á reynir. Við vitum að samfélag er ekki byggt á andúð og togstreitu, heldur trausti og samvinnu. Við skiljum að hver sá sem tekur inn eitur drepur að lokum sjálfan sig. Verða það örlög Miðflokksins? Höfundur er stjórnmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Martha Árnadóttir Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Haltu bara í þér Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Íslenskukunnátta er sameiginleg ábyrgð Helga Rósa Másdóttir,Wendill Galan Viejo skrifar Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Sjá meira
Það er stundum sagt að gremja sé eins og eitur sem tekið er inn í þeirri von að einhver annar hafi illt af. Sú samlíking hefur leitað á mig undanfarna daga í allri umræðunni um myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur - og ekki síst viðbrögðum Miðflokksmanna. Í pólitík er auðvelt að láta gremjuna verða drifkraft. Hún getur sameinað fólk til skamms tíma, skapað háværar fyrirsagnir og kveikt sterkar tilfinningar. En hún byggir sjaldnast neitt upp. Hún grefur frekar skurði milli fólks og gerir samfélagið kaldara og tortryggnara. Gremjan er eins og skólfa - aðeins ein leið og það er niður. Sér grefur gröf þótt grafi Miðflokksmenn hafa óhikað beint spjótum sínum að hópum eða hegðun sem þeir telja óviðeigandi jafnvel ósækilega í okkar samfélagi. Það er erfitt að greina aðrar ástæður fyrir þeim skotmörkum en gremju og lúmska ást á sundrungu, sem ætlað er að ýfa upp andúð, átök og dýpka ömurlegar skotgrafir - kynda undir menningarstríði - sem virtist á köflum ætla að takast. En viðbrögðin við þessari pólitík hafa líka verið athyglisverð eins og nýlega hefur komið í ljós. Hildur Björnsdóttir hefur talið meiri ástæðu til að forðast upphlaup Miðflokksins en að óttast nöldrið í Vókinu - og að mínu mati skynsamlegt. Með því að hafna samstarfi við Miðflokkinn hefur hún mögulega skapað ákveðinn velvilja meðal Samfylkingarfólks, sem er jú fjölmennasti hópurinn í minnihlutanum og jafnvel annarra á vinstri vængnum. Þannig geta talist auknar líkur á breiðari samvinnu í borgarstjórn, sem að sögn Hildar er markmiðið. Taktu tvær grafir Það segir sína sögu að síðast þegar ég vissi hafði aðeins einn fulltrúi Miðflokksins komist í meirihluta í bæjar- og sveitarstjórnum landsins - þrátt fyrir meintan “stórsigur” í kosningunum. Það eru mikil tíðindi. Þau benda til þess að þrátt fyrir hávaðann í umræðunni sé meirihluti fólks ekki tilbúinn að byggja stjórnmál sín á upphrópunum og sundrungu. Þess vegna hefur þessi umræða í raun styrkt trú mína á okkur Íslendingum. Við erum ekki kjánar, druslur eða gungur - við veljum frjálslyndi fram yfir stjórnlyndi þegar á reynir. Við vitum að samfélag er ekki byggt á andúð og togstreitu, heldur trausti og samvinnu. Við skiljum að hver sá sem tekur inn eitur drepur að lokum sjálfan sig. Verða það örlög Miðflokksins? Höfundur er stjórnmálafræðingur.
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun