Styrmir nýr formaður hjá Val Valur Páll Eiríksson skrifar 29. maí 2026 10:02 Styrmir Þór Bragason er nýr formaður knattspyrnudeildar Vals. Vísir/Ívar Styrmir Þór Bragason er nýr formaður knattspyrnudeildar Vals. Hann tekur við stöðunni af Birni Steinari Jónssyni sem stígur út úr stjórn eftir tveggja ára formennsku.
Styrmir hafði verið varaformaður undir formennsku Björns undanfarin tvö ár en hann var einnig framkvæmdastjóri Vals milli 2024 og 2025 en varð í fyrra framkvæmdastjóri Aðalskoðunar. Björn Steinar tók árið 2024 við formennsku af Edvardi Berki Edvardssyni sem hafði verið formaður um árabil. Miklar breytingar hafa orðið hjá Val síðustu misseri og mánuði, þá sérlega fyrir yfirstandandi leiktíð þar sem ný stefna var tekin upp. Gareth Owen var ráðinn yfir knattspyrnudeild félagsins og öllu þjálfarateymi karlaliðs félagsins skipt út. Hermann Hreiðarsson tók við liðinu með Chris Brazell sér til aðstoðar. Ári fyrr hafði Pétri Péturssyni verið skipt út sem þjálfara kvennaliðs félagsins og margir reyndir leikmenn yfirgáfu kvennalið félagsins. Breki Logason, sem hefur setið í stjórn knattspyrnudeildar síðustu ár, tekur við sem varaformaður af Styrmi. Torfi Geir Hilmarsson kemur þá inn í stjórnina og tekur sæti Björns Steinars. Baldur Þórólfsson, Kristinn Ingi Lárusson, Hilmar Þór Hilmarsson og Ólafur Thors sitja áfram í stjórninni. Stjórn knattspyrnudeildar Vals: Styrmir Þór Bragason, formaður Breki Logason, varaformaður Kristinn Ingi Lárusson - Meðstjórnandi Ólafur Thors - Meðstjórnandi - Baldur Þórólfsson - Meðstjórnandi Hilmar Þorsteinn Hilmarsson - Meðstjórnandi Torfi Geir Hilmarsson - Meðstjórnandi Annar nýr formaður Fleiri breytingar urðu hjá Val í vikunni en Hafrún Kristjánsdóttir bauð sig ekki fram til endurkjörs sem formaður félagsins. Líkt og greint var frá á Vísi í gærkvöld tók Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, við formennsku Vals af Hafrúnu. Þá var tillaga um endurreisn styttu séra Friðriks Friðrikssonar, stofnanda Vals, felld á aðalfundi félagsins. Sú var tekin niður árið 2023 eftir að upplýst hafði verið um að Friðrik hefði leitað á unga drengi. Deilt hefur verið um fjarlægingu styttunnar undanfarin þrjú ár og málið reglulega borið upp á fundum innan félagsins. Málið var fellt á aðalfundinum með 40 atkvæðum gegn 31. Karlarnir fimmtu en konurnar sjöundu Valur tapaði fyrir KR í Bestu deild karla á þriðjudaginn var og situr í fimmta sæti deildarinnar með 15 stig eftir níu leiki. Liðið mætir taplausu toppliði Víkings á sunnudagskvöldið kemur í síðasta leik fyrir landsleikjahlé. Kvennalið félagsins vann Víking á mánudaginn var og er með sjö stig í sjöunda sæti Bestu deildar kvenna eftir sex leiki. Valskonur mæta Þrótti að Hlíðarenda í Bestu deild kvenna í kvöld. Sá leikur verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland 3.
Valur Besta deild karla Besta deild kvenna Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira