Körfubolti

Að­stoðaði Baldur en tekur nú við í Þor­láks­höfn

Sindri Sverrisson skrifar
Ilija Omrčen hefur verið aðstoðarþjálfari hjá Stjörnunni en tekur nú að sér aðalþjálfarastarf í Þorlákshöfn.
Ilija Omrčen hefur verið aðstoðarþjálfari hjá Stjörnunni en tekur nú að sér aðalþjálfarastarf í Þorlákshöfn.

Króatinn Ilija Omrčen hefur verið ráðinn nýr þjálfari körfuboltaliðs Þórs í Þorlákshöfn.

Omrčen tekur við af Lárusi Jónssyni sem stýrði Þór um árabil, meðal annars þegar liðið varð Íslandsmeistari árið 2021. 

Hann kemur til Þórs eftir að hafa verið aðstoðarmaður Baldurs Þórs Ragnarssonar hjá Stjörnunni en Baldur er nú tekinn við Álftanesi. Þeir störfuðu áður einnig saman hjá þýska félaginu Ulm.

„Ilija kemur ekki aðeins til starfa sem þjálfari heldur einnig til að taka virkan þátt í uppbyggingu og framtíðarsýn klúbbsins, sem við teljum afar mikilvægt fyrir áframhaldandi þróun félagsins,“ segir í tilkynningu Þórsara þar sem einnig er vitnað í nýja þjálfarann:

„Mér líkaði strax við þá hugmynd sem forystufólk félagsins kynnti fyrir mér. Þegar þessi hugmynd greip mig heljartökum þá vissi ég að ég vildi taka þátt í þessu verkefni.“

Þórsarar féllu úr Bónus-deildinni í vor og spila því í 1. deildinni á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×