Frakkar tóku skuggaskip á Atlantshafi Samúel Karl Ólason skrifar 1. júní 2026 08:45 Frá áhlaupi frönsku hermannanna í gær. Préfet Maritime De L'Atlantique Franskir hermenn gerðu áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er hafa verið notað til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Skipið var stöðvað á alþjóðlegu hafsvæði með aðstoð annarra ríkja, eins og Bretlands, en Frakkar hafa stöðvað nokkur skuggaskip á undanförnum mánuðum.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, tilkynnti áhlaupið í morgun. Þá sagði hann að umrætt skip héti Tagor. Hann sagði óásættanlegt að svokölluð skuggaskip væru notuð til að brjóta gegn refsiaðgerðum og alþjóðasamþykktum um skipaflutninga til að fjármagna stríðsrekstur Rússa í Úkraínu. Þá sagði hann að skipin ógnuðu öryggi fólks og þau væru einnig ógn gegn umhverfinu. Samkvæmt France24, sem vitnar í yfirvöld í Frakklandi, mun skipið hafa verið tekið rúmlega fjögur hundruð sjómílur vestur af Bretaníuskaga. Skipinu mun hafa verið siglt frá Múrmansk í Rússlandi. Áhlaupið var gert á grunni 110. greinar hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna og lék grunur á að olíuflutningaskipinu væri siglt undir fölsku flaggi. Sá grunur reyndist réttur og er nú verið að fylgja skipinu til hafnar í Frakklandi. La Marine nationale a arraisonné hier matin un nouveau pétrolier sous sanctions internationales en provenance de Russie : le Tagor. Notre détermination est constante et totale. Cette intervention a été effectuée en Atlantique, en haute mer,… pic.twitter.com/zxEslYjbUE— Emmanuel Macron (@EmmanuelMacron) June 1, 2026 Mikilvæg tekjulind rússneska ríkisins Ríki eins og Rússland, Íran og Venesúela hafa notað skip úr þessum „skuggaflota“ til að selja olíu þrátt fyrir viðskiptaþvinganir. Tekjurnar af þessari olíusölu eru rússneska ríkinu gífurlega mikilvægar. Sérfræðingar telja hundruð skipa tilheyra þessum flota en í flestum tilfellum er um að ræða gömul olíuflutningaskip sem eru oft í slæmu ástandi. Þeim er reglulega siglt án þess að þau sendi út staðsetningarupplýsingar eða sendar eru út falskar upplýsingar um staðsetningu þeirra. Sjá einnig: Svona virkar „skuggaflotinn“ Samkvæmt alþjóðasamþykktum um skipaflutninga eiga skip að vera skráð í tilteknum ríkjum og bera fána þeirra. Skip eru þá bundin reglum og lögum þeirra ríkja þar sem þau eru skráð. Kerfið var þróað til að tryggja að flutningaskip séu tryggð og að komið sé vel fram við áhafnarmeðlimi. Í mörgum tilfellum eru skip í skuggaflotanum ótryggð. Skipum skuggaflotans er iðulega siglt undan ströndum Evrópuríkja en Úkraínumenn hafa lengi kallað eftir harðari aðgerðum gegn skuggaflotanum. Þrátt fyrir refsiaðgerðir og þvinganir hefur í raun lítið verið gert á undanförnum árum. Nokkur breyting virðist hafa orðið þar á og sérstaklega eftir að Bandaríkjamenn tóku yfir nokkur skip sem notuð voru til að smygla olíu frá Venesúela. Síðan þá hafa ríki í Evrópu einnig gripið til sambærilegra aðgerða. Frakkar hafa stöðvað nokkur skip og það hafa Bretar, Svíar og Finnar gert einnig, svo einhverjir séu nefndir. Fjölmörgum skuggaskipum er þó áfram siglt um heimshöfin og eru flest þeirra látin óáreitt.
Frakkland Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira