Serena snýr aftur á tennisvöllinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 1. júní 2026 14:50 Serena Williams spilaði síðast á Opna bandaríska árið 2022. Al Bello/Getty Images Serena Williams hefur ekki spilað tennis í fjögur ár en nú stefnir næstsigursælasta tenniskona sögunnar á endurkomu.
Hin 44 ára gamla Williams hefur aldrei formlega lagt spaðann á hilluna en hefur ekkert spilað síðan hún datt úr leik í þriðju umferð Opna bandaríska árið 2022. Þegar Serena hætti að keppa árið 2022 fór hún ekki leynt með ástæðuna. Hún vildi eignast annað barn og gerði það í ágúst 2023 en hefur síðan ekkert spilað eftir það. Undir lok síðasta árs þvertók Williams fyrir það að endurkomu væri í vændum en henni hefur greinilega snúist hugur. View this post on Instagram Rykfallinn spaðinn verður aftur dreginn fram á HSCB mótinu við Queen‘s Club í næstu viku. Talið er að hún muni einnig spila á Wimbledon í sumar. „Queen‘s Club finnst mér vera hinn fullkomni vettvangur til að hefja næsta kafla. Grasið hefur gefið mér margar af eftirminnilegustu stundum ferilsins og ég hlakka til að snúa aftur til keppni á einu stærsta sviði íþróttanna,“ sagði Serena samkvæmt Sky Sports. Eldri systir Serenu, Venus Williams, sneri aftur á tennisvöllinn í júlí á síðasta ári. Hún var þá orðin 45 ára gömul og hafði ekki spilað tennis í tvö ár. Saman unnu þær 14 meistaratitla í tvíliðaleik á risamóti. Serena hefur síðan unnið 23 meistaratitla í einliðaleik á risamóti og er sem fyrr segir næstsigursælasta tenniskona sögunnar. Sigursælasta tenniskona sögunnar er enn Margaret Court, með 24 meistaratitla í einliðaleik á risamóti.
Tennis Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið Viktor Gísli framlengir við Barcelona FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Sjá meira