Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. júní 2026 22:37 Íbúar nágrennisins vöknuðu margir hverjir við háværan hvellinn. Skjáskot Kröftug höggbylgja braut glugga og olli skemmdum á húsum í margra kílómetra fjarlægð eftir að eldur kom upp í flugeldaverksmiðju á Möltu. Röð öflugra sprenginga varð í kjölfarið og tveir eru á sjúkrahúsi með áverka af völdum höggsins.
Eldurinn kom upp í morgun í flugeldaverksmiðjunni Lourdes á Triq tal-Qadi-hæð á norðanverðri Möltu. Byggingar í nágrenninu urðu fyrir miklu tjóni en samkvæmt umfjöllun miðilsins Times of Malta er enginn talinn hafa látist af völdum sprengingarinnar. Allir starfsmenn verksmiðjunnar og íbúar í nágrenninu hafi látið vita af sér. Eldsupptök liggja ekki fyrir. Tveir menn sem unnu á akri skammt undan, báðir á miðjum aldri, voru fluttir á sjúkrahús þar sem hlúð var að sárum þeirra sem þó eru sögð lítilsháttar. Einhver fjöldi búfjár er talinn hafa drepist af völdum sprengingarinnar. Heppilega reið sprengingin af um hálf sjöleytið að morgni að staðartíma og því voru starfsmenn ekki mættir til vinnu í verksmiðjunni. Hvellurinn gerði það þó af verkum að þeir voru allir á fótum um það leyti. Höggbylgjan fannst um alla norðanverða eyjuna og hana miðja. Gluggar brotnuðu víða í nærliggjandi bæjum og grjóti rigndi yfir akra og þorp. Bílar urðu fyrir tjóni af þeirra völdum og flutningamaður varð einnig fyrir smávægilegum áverkum af völdum grjótregnsins. Sama flugeldaverksmiðja sprakk einnig í loft upp árið 2018 með þeim afleiðingum að tveir menn slösuðust alvarlega.
Malta Flugeldar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira