Ætla að senda fleiri hælisleitendur á brott Samúel Karl Ólason skrifar 2. júní 2026 10:44 Frá búðum í Frakkalndi þar sem farand og flóttafólk sem vill komast yfir Ermasundið til Bretlands heldur til. AP/Jean-Francois Badias Leiðtogar Evrópusambandsins hafa komist að samkomulagi um ný lög sem ætlað er að umbreyta innflytjenda- og hæliskerfi sambandsins. Meðal annars felur samkomulagið í sér að flýta brottflutningi fólks sem hefur verið meinað um hæli, að reisa móttökustöðvar fyrir farandfólk utan ríkja ESB, styðja þau ríki sem fá hvað mest af farand- og flóttafólki og að hraða ferlinu öllu.
Gagnrýnendur þessara laga hafa, samkvæmt AP fréttaveitunni, gagnrýnt þau harðlega og líkja þeim við aðgerðir og stefnur ríkisstjórnar Donalds Trump í Bandaríkjunum á sviði farand- og flóttafólks. Ráðamenn segja að umsóknir verði teknar fyrir hraðar og fleira fólki sem á ekki rétt á því að dvelja innan ESB verði vísað af svæðinu. Politico hefur eftir Magnus Brunner, yfirmanni málefna farandfólks hjá ESB, að samkomulagið muni gera leiðtogum ESB kleift að ná betri tökum á því hverjir komast þangað og í senn stjórna því betur hverjum verði gert að fara þaðan. Brunner segir að opinber tölfræði bendi til þess að einungis 27 prósent þeirra sem sé hafnað um hæli innan ESB fari þaðan. „Við verðum að gefa fólkinu þá tilfinningu að við höfum stjórn á því sem er að gerast.“ Að minnsta kosti fimm ríki ESB; Austurríki, Danmörk, Holland, Grikkland og Þýskaland, eiga þegar í viðræðum við önnur ríki um að hýsa fólk þar. Flest ríkin eru í Afríku en þessar móttökustöðvar eiga að taka mið af sambærilegum stöðvum sem Ítalar hafa reist í Albaníu. Senda á fólk sem hefur fengið höfnun á þessa staði. Viðræður um lögin hafa staðið yfir um nokkuð skeið en þær strönduðu í síðasta mánuði vegna deilna um hvenær þau ættu að taka gildi. Samkvæmt þessu nýja samkomulagi á hluti laganna ekki að taka gildi fyrr en eftir ár. Aðrir hlutar, eins og það að reisa móttökustöðvar, eiga strax að taka gildi. Bæði framkvæmdastjórn ESB og Evrópuþingið eiga eftir að veita samkomulaginu og lögunum blessun sína. AP segir að búist sé við því að það verði gert. Innan Evrópusambandsins er búið að herða nokkuð á lögum og reglum hvað varðar farand- og flóttafólk á undanförnum árum. Það hefur gerst samhliða auknum stuðningi kjósenda við flokka sem standa gegn því að þessu fólki, sem kemur flest frá Afríku og Mið-Austurlöndum verði hleypt inn fyrir landamæri sambandsins.
Evrópusambandið Flóttamenn Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Innlent Fleiri fréttir Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Sjá meira