Er ESB í alvöru svona vinsælt? Erna Bjarnadóttir skrifar 4. júní 2026 07:33 Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, skrifar grein í Morgunblaðið 2. júní sl. undir fyrirsögninni: „Af hverju er ESB svona vinsælt?“ Hann leitar svara í niðurstöðum nýrrar Eurobarometer-könnunar og bendir á að 58% íbúanna séu jákvæð í garð aðildar lands síns að sambandinu. Af þessu dregur hann þá ályktun að Evrópusambandið sé vinsælt meðal íbúa þess. Er þá EES minna vinsælt? Pawel reynir síðan að styrkja mál sitt með samanburði á afstöðu Dana, Svía til Evrópusambandsins og Íslendinga til EES. Hér dregur hann fram að 82% Dana séu jákvæð í garð ESB-aðildar og sömuleiðis 82% Svía, á meðan 58% Íslendinga séu jákvæð í garð EES-samningsins (sama hlutfall og þeirra sem eru jákvæðir gagnvart ESB í könnun Eurobarometer). Niðurstaðan er síðan dregin fram í einni setningu: „Danir eru sem sagt ánægðari í ESB en við í EES.“ Þarna er farið yfir mikilvægt mörk. Gögnin sýna vissulega að fleiri Danir eru jákvæðir gagnvart ESB en Íslendingar gagnvart EES. En það er ekki það sama og að sýna fram á að ESB sé eftirsóknarverðara fyrirkomulag en EES. Samanburðurinn virðist engu að síður ætla að leiða lesandann að þeirri niðurstöðu. Annars væri erfitt að sjá hvers vegna þessar tölur eru bornar saman. Könnunin mælir hins vegar ekki það sem ályktunin gefur í skyn. Hún mælir viðhorf, ekki hvort annað fyrirkomulagið sé hinu eftirsóknarverðara. Pawel dregur því ályktun sem gögnin sjálf styðja ekki. Könnunin sýnir aðeins afstöðu Dana til ESB og Íslendinga til EES. Hún segir ekkert um hvort Danir væru jafn ánægðir utan ESB, hvort Íslendingar yrðu ánægðari innan ESB eða hvort munurinn stafi yfirleitt af aðildinni sjálfri. Könnunin sýnir því viðhorf en skýrir ekki hvernig þau eru til komin. Hvernig á að lesa niðurstöður kannana Það er vissulega rétt að 58% er meirihluti. En það er þó varla niðurstaða sem ein og sér sannar að um yfirgnæfandi vinsældir sé að ræða. Í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins eru nú heilar kynslóðir fæddar og uppaldar innan sambandsins og hafa aldrei upplifað annað fyrirkomulag. Þessar kynslóðir hafa aldrei kosið um aðild, aldrei búið í landi sem er ekki fullgildur aðili að Evrópusambandinu og hafa enga persónulega reynslu af þeim samanburði sem Pawel lætur liggja að. Það er eitt að vera sæmilega sáttur við kerfi sem maður hefur alltaf búið við. Það er annað að velja það fram yfir raunverulegan valkost á grundvelli eigin reynslu. Þegar Frakki fæddur árið 1975, Spánverji fæddur árið 1995 eða Pólverji fæddur árið 2004 svara spurningu um Evrópusambandið er hann ekki að bera saman tvö stjórnskipulög sem hann hefur sjálfur upplifað. Hann er að lýsa afstöðu sinni til þess veruleika sem hann hefur alltaf þekkt. Þetta er ekki það sama og að halda því fram að Evrópusambandið sé óvinsælt eða að íbúar aðildarríkjanna séu almennt óánægðir með aðild sína. Gögnin geta vel bent til þess að meirihluti Evrópubúa líti sambandið jákvæðum augum. Ágreiningsefnið er ekki niðurstaðan sjálf heldur hvort hún geti borið þá ályktun sem Pawel leggur í hana. Hvað er í raun verið að mæla? Þegar stuðningsmenn aðildar Íslands að Evrópusambandinu vísa í könnun sem þessa sem sönnun fyrir „vinsældum“ Evrópusambandsins er sanngjarnt að spyrja hvað var í raun verið að mæla í þeim. Er verið að mæla stuðning við ESB sem stjórnmálalegt verkefni? Er verið að mæla ánægju með aðild? Eða er einfaldlega verið að mæla viðhorf fólks til þess samfélagsumhverfis sem það hefur alla tíð búið við? Í félagsvísindum gildir einföld regla: Áður en menn ræða svörin þarf að skoða spurninguna. Það er einmitt það sem vantar í pistil Pawels Bartoszek. Lesandanum eru sýndar niðurstöður, en ekki spurningarnar sem þær byggja á. Og án þeirra er erfitt að meta hvort verið sé að mæla stuðning við ESB, ánægju með núverandi stöðu eða einfaldlega jákvæða ímynd af stofnun sem stór hluti svarenda hefur aldrei upplifað að vera án. Þegar slíkar niðurstöður eru notaðar til að draga stórar pólitískar ályktanir um „vinsældir“ Evrópusambandsins er ekki óeðlilegt að spyrja fyrst: Hver var spurningin? Höfundur er hagfræðingur og stjórnarmaður í Heimssýn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar