Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 4. júní 2026 07:01 Deadgroove Games var valið vinsælasta teymið í Gullegginu 2026 en félagið þróar nú tölvuleik sem heitir Replay! The Musical. Á mynd fv. Viktor Ingi Guðmundsson, Adam Murtomaa og Brimrún Birta Friðþjófsdóttir, þau þrjú eru meðal eigenda og mynda saman stjórn félagsins. Vísir/Vilhelm Að vera valin vinsælasta teymið á Gullegginu er eins og að hljóta formlega titilinn: Sætasta stelpan eða sætasti strákurinn á ballinu.
Forvitnin er vakin. Og engin spurning að kynnast þessu vinsælasta teymi betur: Deadgroove Games. Sem svo sannarlega er að vinna að spennandi dæmi. Þar sem söngur, dans og önnur listsköpun sameinast tækninni í tölvuleik. Tölvuleikurinn heitir Replay! The Musical og gengur út á að fólk tekur þátt í söngleiknum: Fyrir alvöru! Tölvuleikurinn er á ensku en sviðsmyndin er íslenskt sjávarþorp. Eiginlega svolítið líkt Snæfellsnesi, og skýringin á því kemur í ljós á eftir. „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi,“ segir Viktor Ingi Guðmundsson, einn eigenda Deadgroove Games, og bætir við: „Spilarinn skapar söngleikinn með því að taka virkan þátt. Þannig að úr verður söngleikur sem gengur út á það sama og við þekkjum úr söngleikjum: Þar sem tilfinningarnar bera karakterinn stundum ofurliði þannig að áður en þú veist af brestur karakterinn þinn í söng.“ Þótt leikurinn sé á ensku er gaman að heyra hvers vegna mikil áhersla er lögð á íslenska sjarmann. Sem er einfaldlega hluti af viðskiptasýninni: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur,“ segir Adam Murtomaa, annar eigandi í hópnum. Markhópurinn er vægast sagt risastór. „Við erum að einblína á markhóp sem er til staðar en fær sjaldan leiki sem eru sérstaklega gerðir fyrir hann,“ segir Brimrún Birta Friðþjófsdóttir, þriðji eigandinn, í samtalinu. Í dag og á morgun ræðir Atvinnulífið við teymi úr hópi vinningshafa Gulleggsins árið 2026. Tölvuleikjaiðnaðurinn er stærri en kvikmyndaiðnaðurinn og íþróttaheimurinn til samans, svo stór er hann. Í Replay! The Musical tekur spilarinn þátt í söngleiknum og stýrir þannig atburðarrásinni. Karakterar bresta í söng af tilfinningaseminni einni saman, eins og gengur og gerist í góðum söngleikjum. Hlátur, söngur og gaman Þremenningarnir Viktor, Adam og Brimrún eru í stjórn Deadgroove Games en eigendur félagsins eru átta talsins og að verkefninu koma enn fleiri. Viktor og Brimrún hafa verið par í um ellefu ár. Adam er því þriðja hjólið í hópnum. Eða „uppáhaldshjólið“ eins og Viktor orðaði það skemmtilega. Og síðan hlógu allir. Því já; það er greinilega gaman að vera í Deadgroove Games-hópnum. Stemningin er allsráðandi og þar er áherslan ekkert síður lögð á listina eins og tæknina. Skapandi list, söngur og dans hlýtur að vera skemmtilegt vinnuumhverfi að vinna í. En á bak við þetta allt saman eru samt útpældar hugmyndir og markmið. Enda tölvuleikjaiðnaðurinn ekkert grín; þetta er einn stærsti afþreyingariðnaður heimsins, stærri en kvikmynda- og íþróttaheimurinn samanlagt. Eru allir í heiminum að spila tölvuleiki? „Já, eiginlega,“ svara þremenningarnir. Tölvuleiki er líka hægt að spila nánast hvar sem er og hvenær sem er. Það eru því nokkurn veginn „allir“ að spila tölvuleiki. Að þróa tölvuleik hefst ekki aðeins með hugmynd, heldur þarf að rýna í gögn og vinna ákveðna rannsóknarvinnu. Úr varð skýr sýn um hver markhópurinn ætti að vera. „Upphaflega kenningin okkar var að leikurinn myndi höfða sérstaklega til evrópskra kvenna á aldrinum 16 til 35 ára,“ segir Viktor og Brimrún bætir við: „Þegar við skoðuðum gögnin úr markaðsstarfinu kom í ljós að nákvæmlega þessi hópur er að finna okkur.“ „Þetta er hópur sem fær oft minna af sérsniðnu efni en hann á skilið,“ segir Adam. En hvernig kviknaði hugmyndin? „Við Viktor erum mjög hrifin af söngleikjum og ferðumst gjarnan til útlanda til að sjá sýningar. Hugmyndin var að gera þessa upplifun aðgengilegri,“ segir Brimrún og Viktor bætir við: „Við sáum líka að það voru furðu fáir tölvuleikir sem nýttu söngleikjaformið á virkan hátt.“ Adam skýrir út og segir: Flestir leikirnir sem eru til og tengjast söngleikjum ganga meira út á að fólk sé að horfa. Við vildum að fólk tæki þátt.“ „Söngleikurinn verður öðruvísi eftir því hver þú ert og hvaða ákvarðanir þú tekur,“ segir Viktor og tekur dæmi um hvernig eitthvað í söngleik getur atvikast þannig að í atburðarásinni fer karakter að syngja til að heilla alla bæjarbúa og svo framvegis. Íslenski sjarminn selur og það er því mjög meðvitað að leikarar og söngvarar eru íslenskir þótt talað og sungið sé á ensku; að vera með íslenska hreiminn er sjarmerandi. Sviðsmyndin minnir helst á íslenskt sjávarþorp enda innblásturinn vestan úr Snæfellsbæ.Vilhelm, Deadgroove Games Alvöru listsköpun Viktor og Brimrún kynntust á sínum tíma í Leikfélaginu Óríón. Þau höfðu oft rætt að skapa einhvern tölvuleik, störfuðu hjá tölvuleikjafyrirtækinu Myrkur Games og það var þar sem þau kynntust Adam. Í fyrra ákváðu Viktor og Brimrún að sækja um styrk í Tónlistarsjóðinn. „Við sóttum samt um styrkinn sem hálfgerða tilraun,“ segir Viktor en bætir við að það hafi líka verið þeim mun ánægjulegra að fá styrkinn: Hann hafi í raun tryggt að boltinn fór fyrir alvöru að rúlla. Að hópnum skilst er þetta fyrsti tölvuleikurinn sem Tónlistarsjóðurinn styrkir. En hvers vegna að fá íslenska söngvara og leikara til að syngja og tala á ensku? Er ekki bara hægt að láta gervigreindina sjá um þetta? „Nei,“ svarar hópurinn um hæl og nánast sýpur hveljur! „Markhópurinn okkar hefur gefið mjög skýr merki um að vilja ekki leik sem byggir á einhverri gervigreindarsköpun og eftirhermum. Þetta er reyndar frekar algilt í tölvuleikjaiðnaðinum. Þar sem notendur velja frekar tölvuleiki sem byggja á alvöru sköpun,“ segir Adam. Við sjáum þetta líka vel hjá þeim hópi sem er að fylgjast með verkefninu á samfélagsmiðlum. Þar spyr fólk okkur reglulega hvort við notum gervigreind. Þegar við segjum nei eykst traustið strax og áhuginn á verkefninu verður meiri.“ „Fyrir okkur snýst þetta líka um handverk og sköpun,“ segir Viktor og Adam bætir við: „Okkur hefur líka komið það svolítið skemmtilega á óvart hversu mikill áhugi er erlendis á framleiðslu tölvuleikja frá Íslandi og það sem meira er: Þarna úti virðist líka hópur áhugafólks um söngleiki sem bíður með mikilli eftirvæntingu vegna þess að það þykir svo áhugavert að þetta sé söngleikur með þessum íslenska sjarma.“ Því þar erum við ekki aðeins að tala um íslenska sjarmann í tali eða söng. Heldur líka í sviðsmyndinni. „Ég er alin upp í Snæfellsbæ og án efa er svolítið af fólki þaðan sem mun þekkja einstakar götur og hús, að því er virðist,“ segir Brimrún og brosir. Því sviðsmyndin, þetta íslenska sjávarþorp að virðist, sækir sinn innblástur í það umhverfi sem Brimrún þekkir að vestan. Deadgroove Games hlaut styrk frá íslenska Tónlistarsjóðnum í fyrra og þá fór boltinn að rúlla fyrir alvöru. Stefnan er að gefa út nýja leiki á um þriggja ára fresti. Enda löng og skemmtileg ævi framundan: Til að búa til tölvuleiki!Vísir/Vilhelm Rétt að byrja Daglegt líf gengur auðvitað út á það sama og flestir frumkvöðlar í sprotastarfi þekkja: Að vinna dag og nótt að góðri hugmynd, gera hana að veruleika en vinna samhliða að alls kyns öðrum verkefnum til að eiga ofan í sig og á. Upptökustúdíó Adams, Kaiku Sound, hefur verið notað frá byrjun. „En vinnan við þetta er mikil og ég var því fljótur að nefna við þau strax í fyrra að eflaust væri skynsamlegra að ég kæmi inn sem eigandi. Ekki einu sinni allur styrkurinn gæti dekkað reikning fyrir svona mikla stúdeóvinnu!“ segir Adam og hlær. Hvar sjáið þið fyrirtækið eftir þrjú til fimm ár? „Ég vona að við verðum búin að gefa út fyrsta leikinn í fullri stærð með tónlist, söng, leikurum og sögu – og séum þegar byrjuð á næsta verkefni,“ segir Viktor. „Við höfum meiri áhuga á að gera smærri og markvissari leiki fyrir ákveðna markhópa en að reyna að höfða til allra,“ útskýrir Brimrún. „Við viljum byggja upp sjálfbært fyrirtæki sem getur skapað fleiri leiki og fleiri störf hér á landi,“ bætir Adam við. Markmiðið er að gefa út nýja leiki á um þriggja ára fresti. Sem er metnaðarfullt markmið í tölvuleikjabransanum, þar sem nýir tölvuleikir koma oft út á um sex til átta ára fresti. Viktor ypptir öxlum þegar þetta er nefnt. Ég á nú bara svo mörg ár eftir af ævi minni til að gera tölvuleiki.“ Og aftur hlær hópurinn.
Tækni Nýsköpun Menning Tengdar fréttir Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Ástríðan skín úr augunum. Eldur brennur þegar talað er. Í raun er ekki hægt annað en að smitast af gleðinni. Eldmóðnum. 22. apríl 2026 07:01 Vaxandi velgengni: „Við erum bara svo góðir vinir“ Þrátt fyrir heimsfaraldur birtust jákvæðar fréttir af fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum árið 2021. Ekki síst fyrirtækjum á sviði nýsköpunar. 2. janúar 2022 08:01 Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði „Eiður Smári talaði nýlega í hlaðvarpinu Dr. Football um að hann væri verkjaður víða eftir ferilinn og gæti ekki hlaupið í dag. Þegar leikmaður sem hefur spilað á hæsta stigi segir þetta, þá sýnir það hversu miklar kröfur fótbolti gerir til líkamans,“ segir Margrét Lilja Burrell frumkvöðull og stofnandi Football Mobility og bætir við: 15. desember 2025 07:01 Stefna að því að opna deiliþjónustu bílferða fljótlega Það verða eflaust margir ánægðir að heyra af appi og vefsíðu sem styttist í að opni og mun bjóða upp á deiliþjónustu bílferða; HuddleHop. 29. maí 2025 07:01 Eistnesk að kenna íslensku: „Þúst, ehaggibara og kúka” Það er vægast sagt frábært að tala við Gamithra Marga, stofnanda TVÍK. Ekki aðeins vegna þess að hún talar frábæra íslensku, vann Gulleggið árið 2022 og hefur þróað mjög skemmtilega útfærslu á stafrænum tungumálaskóla sem heitir TVÍK. 3. apríl 2025 07:02 Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Ástríðan skín úr augunum. Eldur brennur þegar talað er. Í raun er ekki hægt annað en að smitast af gleðinni. Eldmóðnum. 22. apríl 2026 07:01
Vaxandi velgengni: „Við erum bara svo góðir vinir“ Þrátt fyrir heimsfaraldur birtust jákvæðar fréttir af fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum árið 2021. Ekki síst fyrirtækjum á sviði nýsköpunar. 2. janúar 2022 08:01
Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði „Eiður Smári talaði nýlega í hlaðvarpinu Dr. Football um að hann væri verkjaður víða eftir ferilinn og gæti ekki hlaupið í dag. Þegar leikmaður sem hefur spilað á hæsta stigi segir þetta, þá sýnir það hversu miklar kröfur fótbolti gerir til líkamans,“ segir Margrét Lilja Burrell frumkvöðull og stofnandi Football Mobility og bætir við: 15. desember 2025 07:01
Stefna að því að opna deiliþjónustu bílferða fljótlega Það verða eflaust margir ánægðir að heyra af appi og vefsíðu sem styttist í að opni og mun bjóða upp á deiliþjónustu bílferða; HuddleHop. 29. maí 2025 07:01
Eistnesk að kenna íslensku: „Þúst, ehaggibara og kúka” Það er vægast sagt frábært að tala við Gamithra Marga, stofnanda TVÍK. Ekki aðeins vegna þess að hún talar frábæra íslensku, vann Gulleggið árið 2022 og hefur þróað mjög skemmtilega útfærslu á stafrænum tungumálaskóla sem heitir TVÍK. 3. apríl 2025 07:02