„Hrútskýring“ á fiskveiðióstjórn Íslands Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 4. júní 2026 15:31 Komið með á smá söguflakk, ég hef fært hér í stílinn og fer ekki nákvæmlega með smáatriðin , þetta er meira svona eins og það blasir við venjulegu fólki sem hvorki er í pólitík né sagnfræðingar Byrjum að svara spurningu sem kom upp í vikunni. Spurt var: „Hverjir unnu þorskastríðin?“ Stutta svarið: Það er ekki unnið enn. Þrátt fyrir að varðskipin okkar klipptu aftan úr breskum togurum með togvíraklippum við mikinn fögnuð landsmanna. Ásiglingar breskra herskipa og dráttarbáta á varðskipin okkar vakti á hinn bóginn reiði og hneykslan. Meðal þjóðarinnar þá vann engin Þorskastríðið en við höfðum betur þegar yfir lauk í sumarbyrjun 1976 með samningum. Það má lesa um það í bókunum Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins, 1961-1971 og Þorskastríðin þrjú: saga landhelgismálsins 1948-1976 eftir Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðing og fyrrverandi forseta Íslands, sem Sögufélagið gaf út . En eins og við vinstra fólk lítum á það er stríðinu um fiskiauðlindirnar og miðin langt frá því endanlega lokið. Og að svara ásökunum sem hafa komið víða Opinn fundur sem Til Vinstri við ESB hélt á Akureyri um sjávarútvegsmál þann 25. apríl tengdist Samherja og stuðningi við „olígarka“ ekki neitt, fjarstæða að halda því fram sem þó hefur verið gert. Umfjöllun RÚV um frétt í danska dagblaðinu Berlingske sem Hugrún Hannesdóttir Diego skrifaði 18. apríl 2026 um olígarka Íslands var ekki ástæðan fyrir fundinum sem Til Vinstri við ESB hélt á Akureyri um Sjávarútvegsmál. Að saka vinstrifólk um að vera með stuðningsfund fyrir Samherja og aðra olígarka er undarleg nálgun. Þetta er gert til þess að sverta okkar málstað, sem er undarlegt og sárt að heyra frá samflokksmönnum okkar. Dylgjur af þessu tagi falla um sjálfar sig eins og allir vita sem hafa kynnt sér sjávarútvegsstefnu vinstriflokkanna. Sú stefna gengur út á að ná kvótanum úr krumlunum á auðvaldinu og koma honum aftur heim í hérað og sjá fiskvinnslu og Bæjarútgerðir rísa aftur í sjávarþorpum úti á landi, þar sem kvótinn væri eign byggðarlagsins og unninn af heimafólki. Hljómar þetta ekki eins og skrifað af Samherja? Til Vinstri við ESB hefur haldið opna fundi um landbúnaðarmál, hernaðarmál auk fundarins um sjáfarútvegsmál og ætla að halda fundi um evruna og margt annað áhugavert á næstu vikum. Byrjum þá fjörið Íslendingar hafa alltaf verið fiskiþjóð. Hér eru gjöful mið en oft miskunnarlaus og höfum við horft á eftir mörgum ástvinum í klær Ægis við að færa aflann að landi, og vá, það var enginn smá afli. Við unnum myrkranna á milli til að bjarga verðmætunum sem að landi komu, við söltuðum á plani, fórum á vertíðar, unglingar fengu frí í skóla til að vinna því hver þarf menntun þegar það þurfti að bjarga verðmætunum? Mörg okkar munum „peningalyktina“ sem lá yfir þorpunum þegar bræðslan var í gangi. En svo leit einhver upp og spurði: „Hver á öll þessi auðæfi sem við erum að bjarga? Hvert eru peningarnir að fara?“ Já, þegar stórt er spurt. Meðan við vorum upptekin af því að bjarga öllum þessum verðmætum höfðu pólitíkusar plottað með auðmönnum og nánast án þess að við tækjum eftir því þá unnum við ekki fyrir bæjarúgerðina okkar, byggðarlagið átti ekki lengur kvótann. Hvað hafði gerst? Í stuttu máli „Guggan var ekki lengur gul“. Ofansnúningurinn Við verðum að vinda ofan af þessu og það ætlum við vinstra fólk að gera. Að ganga í ESB er engin lausn á þessu, olíugarkarnir þar eru miklu, miklu stærri en okkar. Ef við missum þetta til ESB þá getum við aldrei náð kvótanum, umráðunum yfir stærstu auðlind þjóðarinnar, aftur heim í hérað. Annars gætum við þurft að æfa okkur í að segja upp á spænsku „El pollito siempre será amarillo..“ Bananinn „Kannski hefði bara verið best að borða bölvaða bananana, þá værum við sæl og glöð sitjandi uppi í tré núna,“ spurði ég í grein sem ég skrifaði 2024 og bar það undarlega nafn „Láglaunaþrælar, Samsæriskenning“ og var um þróunarsögu verkamannsins/konunnar Ef við förum í ESB höfum við ekkert val. Bananinn verður stappaður ofan í okkur og við verðum að kyngja. Í sjávarútvegsmálum, landbúnaðarmálum, utanríkismálum og öllum hinum málunum líka. Höfundur er félagi í Til Vinstri við ESB og komin af fiskverkafólki Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Sjávarútvegur Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Sjá meira
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar