Sport

Sara Björk komin heim

Aron Guðmundsson skrifar
Rætt var um heimkomu Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í Besta sætinu í dag. Hún ætlar að hjálpa uppeldisfélaginu við að koma sér upp í Bestu deildina. Hvalreki!
Rætt var um heimkomu Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í Besta sætinu í dag. Hún ætlar að hjálpa uppeldisfélaginu við að koma sér upp í Bestu deildina. Hvalreki! Vísir/Samsett

Þrátt fyrir að komið sé hásumar er nóg að frétta úr heimi íþróttanna. Stór tíðindi að berast af kvennaliði Hauka sem er að fá sína bestu dóttur aftur heim, Sara Björk Gunnarsdóttir ein sú besta í sögu Íslands frá upphafi að stimpla sig inn í íslenska boltann. Ögmundur Kristinsson á leið í Víkina, Kane laus úr fangelsi og ég veit ekki hvað og hvað. Alvöru yfirferð í Besta sætinu í dag.

Sara Björk Gunnarsdóttir, ein besta knattspyrnukona Íslands frá upphafi hefur ákveðið að taka slaginn með uppeldisfélagi sínu Haukum í Lengjudeildinni og hjálpa liðinu upp í efstu deild. 

Á sama tíma er Ögmundur Kristinsson búinn að losa sig undan samningi hjá Val og á leið til Íslandsmeistara Víkings Reykjavíkur. 

Íslandsmeistarinn DeAndre Kane er laus úr fangelsi og virðist búinn að koma sínum málum í farveg. 

Elvar Már Friðriksson er einum sigurleik frá því að slá stórlið Real Madrid úr leik í úrslitakeppninni á Spáni með La Laguna Tenerife og Knicks byrja sitt fyrsta úrslitaeinvígí í NBA deildinni í langan tíma á sigri. 

Þá eru í gangi skrautlegar kosningar hjá Real Madrid þar sem menn lofa hinu og þessum, einu stykki Haaland án þess að nokkuð virðist á bakvið það.

Þetta og meira til í Besta sæti dagsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×