Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Lovísa Arnardóttir skrifar 5. júní 2026 12:01 Jakob segir sveitarstjórana á svæðinu verulega ósátta við ákvörðun ráðherra. Samsett Sveitarstjóri Stykkishólms segir tilfærslu á ferjunni Baldri til Vestmannaeyja óheppilega, fyrirvarann of stuttan og tilfærslan ekki í samræmi við samkomulag við ríkið. Sveitarfélögin á svæðinu mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa ferjuna og sérstaklega því fordæmi sem ákvörðunin kann að skapa.
Sveitarfélögin Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur hörmuðu og mótmæltu ákvörðun innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði í sameiginlegri ályktun í gær og sérstaklega því fordæmi sem ákvörðunin kann að skapa. Undir ályktunina skrifa einnig þau Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, og Kjartan Þór Ragnarsson, talsmaður sveitarstjórnar Reykhólahrepps. „Okkur var bara tilkynnt fyrir þremur dögum að Baldur yrði tekinn úr siglingum í Breiðafirði og síðan hefur maður heyrt að ferjuleiðinni hafi verið falið að færa sínar bókanir til og tilkynna um afbókanir á mjög skömmum tíma, sem er auðvitað mjög óheppilegt fyrir alla aðila,“ segir Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi. Á meðan muni ferjan Særún sigla til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs og tryggja þjónustu við samfélagið þar. Vísað var til mikilla anna í flutningum til og frá Vestmannaeyjum á næstunni og að þess vegna væri talið nauðsynlegt að varaskipið Baldur bættist við ferjuþjónustu til Eyja á þessu tímabili. Töluverður munur er á Særúnu, til vinstri, og Baldri, til hægri, og getu þeirra til flutninga. Samsett Særún anni ekki eftirspurn Baldurs Jakob segir Særúnu farþegaskip sem sinni eyjasiglingum í Breiðafirði og því að engu leyti sambærilegt við Baldur. „Þetta er skipið sem fer um Breiðafjörðinn og sýnir fólki náttúru og fuglalíf og fer í plóginn niður og dregur upp sjávarafurðir af botni Breiðafjarðar og gefur fólki víkingasushi,“ segir Jakob. „Þetta er náttúrulega farþegaskip, mun minna farþegaskipt, það tekur um 100, 200 manns held ég en þetta hefur gríðarleg áhrif á alla þjónustu, flutning bíla, og ekki síst fyrir þá þjónustu sem Flatey þarf á að halda. Orkubú Vestfjarða er með framkvæmdir þarna í júnímánuði sem eru í hálfgerðu uppnámi og síðan þarf að koma vatni yfir og það er grásleppuvertíð í gangi.“ Vinnsla í uppnámi Það sé verið að landa afla í Flatey sem sé fluttur til vinnslu í Stykkishólmi og það sé allt í uppnámi því farþegaskipið nái ekki að anna þessu. „Ef við hefðum vitað þetta fyrr, fyrir fjórum vikum eða tveimur mánuðum, að þetta væri fyrirhugað, þá væri hægt að gera einhverjar ráðstafanir og undirbúa en núna er þetta bara að koma einn tveir og tólf og það er ekki búið að undirbúa neitt,“ segir hann og að það þurfi að breyta öllum ráðstöfunum varðandi uppbyggingu Orkubús Vestfjarða í júní því flutningar skerðist. Þetta séu ein dæmi um áhrifin af þessari ákvörðun. „Við höfum fullan skilning og sýnum samstöðu með Vestmannaeyingum þegar Herjólfur er ekki starfræktur, ef hann fer í slipp og er óstarfhæfur, eins og samningar kveða á um.“ „En það er þetta þegar það er verið að taka skipið í siglingar, frá Breiðafirði, þegar það er verið að anna umframeftirspurn, þar drögum við línuna því það er ekki í samræmi við okkar samtal við ríkið.“ Samningurinn kveði á um að Baldur sé varaskip þegar Herjólfur sé ekki starfhæfur. Jakob segir sveitarstjóra á svæðinu óttast fordæmið sem þessi ákvörðun setur. „Herjólfur er að sigla en það er bara verið að taka ákvörðun um að bæta Baldri við til að anna eftirspurn. Það er það sem við gerum athugasemdir við, og alvarlegar athugasemdir, og við viljum ekki að þetta sé fordæmi sem endurtekur sig.“ Megi ekki taka Baldur þegar eitthvað er í gangi annars staðar Hann segir ráðherra meðvitaðan um þeirra afstöðu. „En við höfum samt ekki fengið formlega svör frá ráðherra um að þetta muni ekki endurtaka sig með þessum hætti. Við viljum ekki að þetta endurtaki sig með þessum hætti, að bæði sé fyrirvarinn stuttur og að Baldur sé fluttur til að anna eftirspurn annars staðar á landinu, hvort sem það er Vestmannaeyjar eða eitthvað annað sérstakt að gerast, þá er Baldur tekinn úr í siglingum hérna af því að það er eitthvað að gerast í Grímsey í Vestmannaeyjum. Þar verðum við bara að draga línuna í sandinn. Við erum ekki að fara þangað með Baldur“
Ferjan Baldur Stykkishólmur Vesturbyggð Reykhólahreppur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skipaflutningar Flatey Sjávarútvegur Tengdar fréttir Sumaráætlun Herjólfs frestað Siglingum Herjólfs samkvæmt sumaráætlun hefur verið frestað. Ástæðan er sögð sú að ferjan sigli enn á einni skrúfu. 2. júní 2026 17:25 Eyjar í óvissu á meðan ráðherra bíður eftir haustinu Samgöngur til Vestmannaeyja eru ekki munaður. Þær eru lífæð samfélagsins. Þess vegna olli opinn fundur um stöðu Landeyjahafnar og Herjólfs miklum vonbrigðum hjá okkur Eyjamönnum. Það sem átti að vera fundur um lausnir, framtíðarsýn og ábyrgð varð að stórum hluta upptalning á „náttúruöflum“ og ástæðum fyrir því af hverju hlutirnir séu erfiðir. 18. maí 2026 17:30 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira
Sumaráætlun Herjólfs frestað Siglingum Herjólfs samkvæmt sumaráætlun hefur verið frestað. Ástæðan er sögð sú að ferjan sigli enn á einni skrúfu. 2. júní 2026 17:25
Eyjar í óvissu á meðan ráðherra bíður eftir haustinu Samgöngur til Vestmannaeyja eru ekki munaður. Þær eru lífæð samfélagsins. Þess vegna olli opinn fundur um stöðu Landeyjahafnar og Herjólfs miklum vonbrigðum hjá okkur Eyjamönnum. Það sem átti að vera fundur um lausnir, framtíðarsýn og ábyrgð varð að stórum hluta upptalning á „náttúruöflum“ og ástæðum fyrir því af hverju hlutirnir séu erfiðir. 18. maí 2026 17:30