„Erum við að fara að deyja?“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 5. júní 2026 11:47 Sjálfsprengidróni setti svip sinn á sólstrandarferðalag rúmensk-íslenskrar fjölskyldu. Vísir/Samsett Íslensk fjölskylda var að kaupa í matinn í sólstrandarferðalagi sínu í Constanța á Svartahafsströnd Rúmeníu þegar stærðarinnar sprenging reið yfir. Það reyndist vera sjávardróni frá vígstöðvunum skammt undan.
Jón Murariu, rúmenskur maður búsettur á Íslandi, er í ferðalagi ásamt konu sinni Guðrúnu Björgu Elínardóttur og dóttur hennar um hina sólríku Svartahafsströnd Rúmeníu. Fréttir bárust af því í dögun að yfirvöld hefðu komið auga á sjávarsjálfsprengidróna út fyrir höfnina í Constanța. Íbúum var sagt að halda rónni og að engin hætta stafaði af drónanum. Annað var hins vegar uppi á teningnum. Neyðarboð í alla síma Þegar fjölskyldan var að kaupa í matinn skammt frá þeim stað þar sem þau dvelja í borginni, um kílómetra frá höfninni, hafði dróninn siglt inn í höfnina og sprungið með háværum hvelli og stórum reykjarmekki. Þessi neyðarboð bárust öllum símum í grenndinni skömmu eftir sprenginguna.Aðsend Skömmu síðar fóru símar allra viðskiptavinanna í versluninni að pípa og titra svo fjölskyldunni brá við. Rúmensk yfirvöld höfðu sent út neyðarboð á alla síma á svæðinu. „Það var svo hátt. Það var ekki huggulegt. Ekki eins og í tívolíi,“ segir Jón og fjölskyldan hlær við. Blaðamaður hafði samband við þau þar sem þau lágu á ströndinni í sólbaði skammt frá þeim stað sem sjálfsprengidróninn sprakk á. Fjölskylda Jóns býr í borginni Galați sem er ekki nema rúmum tíu kílómetrum frá landamærunum að Úkraínu. Þar hafnaði dróni í fjölbýlishúsi á dögunum með þeim afleiðingum að tveir særðust. Stríðið er því mun nær en Íslendingar hafa að venjast. „Þetta er alls ekki vanalegt hér. En við erum svo nálægt stríðinu að svona getur gerst. Lífið gengur samt bara áfram sinn vanagang,“ segir Jón. Dóttirin skelkuð Guðrún Björg segir fólki hafa brugðið við neyðarboðin. Sérstaklega ung dóttir hennar. „Hún var mjög hrædd og spurði: „erum við að fara að deyja?“ segir Guðrún. Fjölskyldan á góðri stund við ströndina í gær.Aðsend Hún segir fjölskylduna einnig hafa farið í göngutúr um hafnarsvæðið, um það bil þar sem dróninn sprakk, í gærkvöldi. Samkvæmt yfirlýsingum rúmenska varnarmálaráðuneytisins í kjölfar sprengingarinnar var dróninn ekki á vegum þeirra. Ekki er ljóst hvort um úkraínskan eða rússneskan dróna er að ræða og heldur ekki hvort þetta hafi verið gert með ráði eða hvort um tæknibilun hafi verið að ræða. Uppfært 12:39: Úkraínski sjóherinn hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hann segir drónann hafa verið sinn og að hann hafi misst samband við stjórnstöðina vegna truflunar Rússa.
Íslendingar erlendis Innrás Rússa í Úkraínu Rúmenía Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira