Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar 5. júní 2026 16:31 Tvö umdeild frumvörp liggja fyrir Alþingi sem snúa að því að leggja niður Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna annað er um Stofnun atvinnuveganna hjá atvinnuveganefnd og hitt um einföldun regluverks og aukin skilvirkni með eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum hjá umhverfis- og samgöngunefnd. Fyrirhugaðar breytingar eru kynntar sem einföldun regluverks og aukin skilvirkni. Í reynd er þó um að ræða flóknari stjórnsýslu, fleiri aðila sem koma að eftirliti og aukið flækjustig fyrir bæði almenning og atvinnulíf. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna hefur þróast í takt við íslenskar aðstæður í meira en 100 ár. Kerfið hefur margsannað gildi sitt sem svokallað „one stop shop“, þar sem rekstraraðilar geta leitað til eins staðbundins aðila um eftirlit, ráðgjöf og úrlausn mála. Það er ekki einföldun að rjúfa það fyrirkomulag án þess að skýra hvernig nýtt kerfi á að virka í raun. Fyrrnefnd frumvörp byggja að verulegu leyti á því að færa verkefni af sveitarstjórnarstigi yfir til ríkisins, en slík tilfærsla ein og sér tryggir hvorki betri samræmingu né meiri skilvirkni. Þvert á móti eykur hún kostnað, tvíverknað og skapar óvissu. Eitt sameiginlegt skráningarkerfi, skýr verkaskipting og sterkari yfirstofnanir (eða jafnvel ein yfirstofnun) væri mun raunhæfari leið til umbóta. Yfirstofnanir sem hafa það ábyrgðarhlutverk að sjá um samræmingu, leiðbeina og móta stefnu í eftirlitinu verða að gefa þessu hlutverki sínu meira vægi. Þessar stofnanir mega ekki verða svo stórar að þær missa sjónar á því sem fellur undir þeirra ábyrgð. Það sem vantar í umræðuna er að heilbrigðiseftirlit sinnir gríðarlega mikilvægu forvarnarstarfi sem verndar heilsu almennings, stuðlar að neytendavernd og heilnæmu umhverfi. Þegar slíkt kerfi er skert eða flutt í fjarlægari stofnanir bitnar það á þjónustu sem verður óljósari og viðbrögð hægari. Umbætur eru nauðsynlegar, en þær verða að byggja á raunhæfum útfærslum, ekki slagorðum um einföldun sem standast ekki skoðun. Höfundur er heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík og formaður Félags heilbrigðisfulltrúa á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Tvö umdeild frumvörp liggja fyrir Alþingi sem snúa að því að leggja niður Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna annað er um Stofnun atvinnuveganna hjá atvinnuveganefnd og hitt um einföldun regluverks og aukin skilvirkni með eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum hjá umhverfis- og samgöngunefnd. Fyrirhugaðar breytingar eru kynntar sem einföldun regluverks og aukin skilvirkni. Í reynd er þó um að ræða flóknari stjórnsýslu, fleiri aðila sem koma að eftirliti og aukið flækjustig fyrir bæði almenning og atvinnulíf. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna hefur þróast í takt við íslenskar aðstæður í meira en 100 ár. Kerfið hefur margsannað gildi sitt sem svokallað „one stop shop“, þar sem rekstraraðilar geta leitað til eins staðbundins aðila um eftirlit, ráðgjöf og úrlausn mála. Það er ekki einföldun að rjúfa það fyrirkomulag án þess að skýra hvernig nýtt kerfi á að virka í raun. Fyrrnefnd frumvörp byggja að verulegu leyti á því að færa verkefni af sveitarstjórnarstigi yfir til ríkisins, en slík tilfærsla ein og sér tryggir hvorki betri samræmingu né meiri skilvirkni. Þvert á móti eykur hún kostnað, tvíverknað og skapar óvissu. Eitt sameiginlegt skráningarkerfi, skýr verkaskipting og sterkari yfirstofnanir (eða jafnvel ein yfirstofnun) væri mun raunhæfari leið til umbóta. Yfirstofnanir sem hafa það ábyrgðarhlutverk að sjá um samræmingu, leiðbeina og móta stefnu í eftirlitinu verða að gefa þessu hlutverki sínu meira vægi. Þessar stofnanir mega ekki verða svo stórar að þær missa sjónar á því sem fellur undir þeirra ábyrgð. Það sem vantar í umræðuna er að heilbrigðiseftirlit sinnir gríðarlega mikilvægu forvarnarstarfi sem verndar heilsu almennings, stuðlar að neytendavernd og heilnæmu umhverfi. Þegar slíkt kerfi er skert eða flutt í fjarlægari stofnanir bitnar það á þjónustu sem verður óljósari og viðbrögð hægari. Umbætur eru nauðsynlegar, en þær verða að byggja á raunhæfum útfærslum, ekki slagorðum um einföldun sem standast ekki skoðun. Höfundur er heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík og formaður Félags heilbrigðisfulltrúa á Íslandi.
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun