Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Bjarki Sigurðsson skrifar 8. júní 2026 08:00 Kílómetragjald greiðist mánaðarlega. Vísir/Vilhelm Mánaðarlega kvarta fjölmargir yfir því að fá tvær kröfur í heimabankann vegna kílómetragjaldsins. Yfirmaður þjónustulausna hjá Skattinum segir að í langflestum tilvikum sé ekki verið að tvírukka fólk.
Í Facebook-hópnum Kílómetragjaldið birtust fjölmargar færslur um mánaðamótin þar sem fólk kvartaði yfir því að fá tvær kröfur, með sitt hvorri upphæðinni, vegna kílómetragjaldsins. Ævar Ísberg, yfirmaður þjónustulausna hjá Skattinum, segir þetta vandamál koma einna helst upp hjá fólki sem skráir reglulega inn kílómetrastöðuna á Ísland.is. „Kerfið virkar þannig að í hverjum mánuði færðu svokallaða bráðabirgðagreiðslu sem er svona hálfgerð fyrirframgreiðsla. Þú greiðir hana í upphafi mánaðar fyrir næstliðinn mánuð. Þegar þú svo skráir næst akstursstöðu ökutækisins eru þau tímabil þar sem ekki hefur farið fram endanleg álagning og uppgjör gerð upp. Þannig ef að þú skráir akstursstöðuna í hverjum mánuði færðu alltaf þessa bráðabirgðagreiðslu fyrir næstliðinn mánuð og uppgjör fyrir mánuðinn þar á undan,“ segir Ævar. Skrái fólk ekki í hverjum mánuði greiðir það sömu upphæð mánaðarlega og svo er allt gert upp þegar staðan er loks skráð, sem gæti verið ári seinna. „Miðað við að við erum að leggja á þrjú hundruð þúsund ökutæki í hverjum mánuði er þetta ekki stór hluti í hverjum mánuði sem kvartar og bendir á einhverjar skekkjur. En ef það gerist leysum við úr því. Yfirleitt er lausnin að skrá stöðuna aftur,“ segir Ævar. Myndir þú segja að frá ykkar bæjardyrum séð hafi innleiðing kílómetragjaldsins gengið ágætlega? „Já, já. Ég held við verðum að segja það. Þetta er stórt og flókið verkefni sem teygir anga sína til fleiri en einnar stofnunar. Miðað við það hefur þetta gengið nokkuð vel þó að vissulega hafi komið upp nokkrir hnökrar sem við höfum verið að leysa úr og erum að leysa úr.“
Kílómetragjald Skattar, tollar og gjöld Bílar Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira