Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Valur Páll Eiríksson skrifar 6. júní 2026 18:10 Elvar Már í fyrsta leiknum við Real Madrid. Tenerife, lið Elvars Más Friðrikssonar, fór áfram í undanúrslit í úrslitakeppninni í spænska körfuboltanum eftir frábæran tólf stiga sigur á Real Madrid í spænsku höfuðborginni.
Elvar Már gekk í raðir Tenerife þegar aðeins tvær umferðir voru eftir af spænsku deildinni vegna meiðsla lykilmanns í röðum liðsins. Hann hafði þá lokið tímabili sínu í Póllandi. Markmiðið var að komast í úrslitakeppnina og Tenerife slefaði þar inn í áttunda sæti deildarinnar, neðst þeirra liða sem fór í úrslitin. Því lá fyrir risavaxið verkefni, að fella ríkjandi Spánarmeistara Real Madrid. Tenerife vann fyrsta leikinn óvænt í Madríd en fékk svo stóran skell á heimavelli í vikunni og þótti öllum ljóst að Madrídingar myndu pakka Tenerife-mönnum aftur saman í dag, í þetta sinn á eigin heimavelli. Það var hreint ekki svo. Úr varð jafn og spennandi leikur þar sem fátt fékk liðin aðskilin frá upphafi til enda. Tenerife var svo sterkara á lokakaflanum og vann 107-95 sigur. Liðið vann einvígið því 2-1 og bindur þar með enda á leiktíð ríkjandi Spánarmeistara sem stefndu að sautjánda Spánartitli sínum. 37 ára gamli Ástralinn Patty Mills, sem lék með San Antonio Spurs í NBA milli 2012 og 2021, stóð upp úr hjá Tenerife með 29 stig á aðeins 19 mínútum spiluðum. Elvar Már sat allan tímann á varamannabekknum og tók ekki þátt í leik kvöldsins en gat heldur betur fylgst stoltur með liðsfélögum sínum sem fara þessu næst í undanúrslitin.
Spænski körfuboltinn Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sjá meira