Englendingar ósannfærandi í sigri Valur Páll Eiríksson skrifar 6. júní 2026 21:57 Kane skoraði landsliðsmark númer 79 í kvöld. Rich Storry/Getty Images England vann 1-0 sigur á Nýja-Sjálandi í æfingaleik í Flórída í kvöld. Enska liðið hefur spilað betur en í dag.
Thomas Tuchel skipti liðinu milli hálfleikja og einhverja leikmenn vantar enn í hópinn. Bukayo Saka, Noni Madueke og Declan Rice, leikmenn Arsenal, voru ekki með. Ungir leikmenn hafa fyllt í æfingahópinn og einn þeirra, Rio Ngumoha, ungstirni Liverpool, þreytti frumraun sína er hann spilaði síðari hálfleikinn í dag. Englendingar stýrðu ferðinni í dag en leikurinn var hægur og tíðindalítill í hitanum á Raymond James-vellinum, heimavelli Tampa Bay Buccaneers í NFL-deildinni. Harry Kane skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar hann skallaði inn fyrirgjöf frá Djed Spence. Um var að ræða 79. landsliðsmark Kane í 113. landsleiknum. Hann er markahæstur í sögu enska landsliðsins. England var að mæta nýsjálensku liði sem er nýbúið að tapa 4-0 fyrir Haítí svo menn vildu eflaust meira. Liðið mætir Kosta Ríka í æfingaleik 10. Júní áður en það hefur leik á HM gegn Króatíu á þjóðhátíðardag Íslands. Einnig eru Gana og Panama með Englandi í riðli. Lið Englands í fyrri hálfleik: Jordan Pickford; Djed Spence, Marc Guéhi, John Stones, Jarrell Quansah; Marcus Rashford, Jordan Henderson, Kobbie Mainoo, Morgan Rogers; Ollie Watkins, Harry Kane (f). Lið Englands í síðari hálfleik: James Trafford; Valentino Livramento, Reece James, Ezri Konsa, Dan Burn, Nico O‘Reilly; Elliot Anderson, Jude Bellingham; Rio Ngumoha, Ivan Toney, Anthony Gordon. Skotar öflugir Skoska landsliðið var öllu meira sannfærandi gegn Bólivíu. Liðið vann 4-0 sigur þökk sé fjórum mörkum í fyrri hálfleik. Lawrence Shankland, sem er á leið frá Hearts til Rangers, skoraði það fyrsta. Scott McTominay setti næsta áður en Che Adams skoraði tvö. Þeir skosku voru að spila sinn síðasta leik fyrir mót. Þeir mæta Haítí í fyrsta leik á HM þann 13. júní, því næst Marokkó 19. júní og loks Brasilíu þann 24. júní.
Enski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Sjá meira