Erlent

Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug

Kristján Már Unnarsson skrifar
Rafmagnsflugvél Heart Aerospace prófuð í akstri á flugvellinum í Plattsburgh í New York-ríki í lok maímánaðar.
Rafmagnsflugvél Heart Aerospace prófuð í akstri á flugvellinum í Plattsburgh í New York-ríki í lok maímánaðar. Heart Aerospace

Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur birt myndband af frumútgáfu ES-30 rafmagnsflugvélar sinnar í reynsluakstri á flugvellinum í Plattsburgh í norðurhluta New York-ríkis. Slíkar prófanir á jörðu niðri eru þýðingarmikil þáttur í undirbúningi fyrir fyrsta flugið.

ES-30 er stærsta rafmagnsflugvélin sem komin er þetta langt í þróun, með sæti fyrir 30 farþega. Hún þykir líkleg til að verða brautryðjandi í innleiðingu arðbærs rafknúins farþegaflugs í heiminum, einnig á Íslandi, en Icelandair hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um kaup á fimm eintökum.

ES-30 flugvélin sýnd í litum Icelandair.Heart Aerospace

Eftir að Heart Aerospace tilkynnti fyrir ári að það hefði ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Kaliforníu í Bandaríkjunum hafa þar til núna afar takmarkaðar fréttir borist af smíði flugvélarinnar en hún er talin helsta vonarstjarna fluggeirans til að leiða þróun að sjálfbæru og mengunarfríu atvinnuflugi.

Tilraunin sem núna var greint frá var þó aðeins í hægum akstri eftir flugbrautum. Engu að síður segir Heart Aerospace þetta mikilvægan áfanga í prófunaráætlun flugvélarinnar á jörðu niðri fyrir fyrsta flugið og vottun bandarísku flugmálastjórnarinnar FAA. Engin tímasetning er þó gefin upp um hvenær fyrsta flug gæti orðið en stefnt er að tegundarvottun árið 2029.

Hér má sjá reynsluakstur flugvélarinnar:

Um líkt leyti birtist skýrsla frá rannsóknar- og eftirlitsstofnun fulltrúadeildar bandaríska þingsins, þeirra ríkisendurskoðun, þar sem varað er við því að skortur á nauðsynlegum innviðum gæti tafið innleiðingu rafknúinna flugvéla. Vitnað er í gögn frá FAA sem sýndu að í desember 2025 höfðu aðeins 47 flugvellir í Bandaríkjunum skilgreint hleðslustöðvar fyrir rafknúnar flugvélar í áætlunum sínum. Þjálfun starfsfólks flugvalla væri á frumstigi, þar á meðal slökkviliða í að fást við bruna í rafhlöðum.

ES-30 flugvélinni er ætlað að geta þjónað allt að 200 kílómetra löngum flugleiðum á hreinu rafmagni en 800 kílómetra löngum sem tvinnvél eða „hybrid“.Heart Aerospace

Ennfremur er bent á að flugmálastjórnin sjálf hafi ekki komið sér upp samræmdu regluverki til að votta rafknúnar flugvélar. Á sama tíma sé tilskipun þingsins um að uppfæra lofthæfistaðla fyrir rafhreyfla, sem átti að ljúka fyrir maí 2027, þegar farin í vaskinn vegna þess að ráðgjafarnefnd, sem sett var í verkefnið, var í raun lögð niður af stjórn Trumps í ágúst 2025.

Í tæknilýsingu ES-30 flugvélarinnar segir að rekstrarkostnaður hennar verði verulega lægri en hefbundinna flugvéla. Stutt flugbrautaþörf og lítill hávaði geri henni kleift að nýta nýjar flugleiðir út frá minni flugvöllum. Hún er talin þurfa 1.100 metra langa flugbraut og 30 mínútna hleðslutíma milli flugferða.

Frumgerðin var fyrst sýnd í Gautaborg haustið 2024 en í fréttinni má einnig sjá tölvugert myndskeið af henni á flugi í litum Icelandair:


Tengdar fréttir

Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar

Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur frestað fyrsta reynsluflugi HX-1 rafmagnsflugvélar sinnar fram á nýtt ár. Fyrirtækið hafði fyrir hálfu ári kynnt að fyrsta flugið yrði á síðasta fjórðungi þessa árs.

Rafmagnsflugvél reynd í áætlunarflugi í Noregi

Fyrsta áætlunarflug rafknúinnar flugvélar í Noregi var farið síðastliðinn fimmtudag í tilraunaskyni. Flogið var milli Stafangurs og Björgvinjar á rafmagnsflugvélinni Alia, sem framleidd er af bandaríska fyrirtækinu Beta Technologies. Flugið er liður í þróunarverkefni í átt að kolefnislausum flugsamgöngum.

Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar

Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug.

Kynntu rafmagnsflugvélina sem Icelandair hefur pantað

Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace kynnti í dag fyrsta tilraunaeintak þrjátíu sæta rafmagnsflugvélar. Hún gæti orðið fyrsta rafknúna flugvélin í innanlandsflugi hérlendis en Icelandair hefur skráð sig fyrir fimm eintökum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×