„Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Valur Páll Eiríksson skrifar 7. júní 2026 21:46 Katla Tryggvadóttir Vísir/VPE Katla Tryggvadóttir er klár í slaginn fyrir leik Íslands við heimsmeistara Spánar á Laugardalsvelli á þriðjudagskvöldið kemur. Hún missti af fyrri leik liðanna sökum veikinda en fær nú tækifæri til að mæta besta liði heims. „
Ég er bara góð. Þetta voru mikilvæg þrjú stig, eins og þú segir. Og svo er alltaf gott að koma heim,“ segir Katla og á þar við um 1-0 sigur Íslands á Úkraínu á föstudaginn var. Sá sigur tryggði Íslandi þriðja sæti riðilsins og veitir þægilegri leið í umspil um sæti á HM í Brasilíu. Klippa: Katla ræðir leikinn við heimsmeistarana „Þetta var ekkert fallegasti fótboltaleikur sem hefur verið spilaður. En það sem við tökum úr honum eru þrjú stig og að vera skrefinu nær HM,“ segir Katla sem fékk að spila síðustu mínútur leiksins af bekknum. „Mér leið bara vel á vellinum. Mér fannst við hafa stjórn á leiknum. Þetta var smá hark í lokin en stundum þarf að þjást. Mér fannst við alveg hafa stjórn á leiknum. Mér fannst þetta aldrei í hættu og var aldrei hrædd um að þær myndu skora eða eitthvað svoleiðis,“ segir Katla. Átt þú skilið stærra hlutverk í liðinu? „Ég held að allir leikmenn vilji stærra hlutverk í sínu liði en ég held bara áfram að berjast fyrir mínum mínútum og nýti tækifærin þegar þau koma. Þolinmæði er dyggð,“ segir Katla létt. Allt of veik til að muna eftir fyrri leiknum Næst er töluvert frábrugðið verkefni gegn heimsmeisturum Spánar sem er jafnframt síðasti leikurinn í riðlinum. Það er ekki á hverjum degi sem heimsmeistarar heimsækja Laugardalsvöll. „Það er stórt. Þær eiga ekki að fá neitt gefins, þær eru mættar til Íslands og þurfa að hafa fyrir öllu sem þær gera. Við ætlum að gefa þeim hörku leik,“ segir Katla. Aðspurð um lærdóm af fyrri leik liðanna á Katla erfitt með að svara. Hún veiktist í aðdraganda þess leiks, líkt og fjallað hefur verið um á Vísi, og var það lasin á spítala að hún man lítið eftir leiknum. „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað. Ég man ekki mikið eftir honum ef ég á að vera alveg hreinskilin. Ég held að það sé ótrúlega mikilvægt fyrir okkur að vera þéttar og nýta svo þau tækifæri sem við fáum, ég held þau verði ekki mjög mörg og það er þeim mun mikilvægara að nýta þau,“ segir Katla. Viðtalið má sjá í spilaranum. Ísland mætir Spáni á Laugardalsvelli á þriðjudagskvöldið kemur klukkan 19:00.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Semenyo spenntur fyrir því að starfa undir nýja þjálfaranum Sjá meira