Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Sindri Sverrisson skrifar 8. júní 2026 15:47 Moutaz Neffati (til vinstri á mynd) fagnar eftir sigur gegn Namibíu í undankeppni HM síðasta haust. Getty/Tnani Badreddine Moutaz Neffati spilaði í Bestu deildinni á Íslandi fyrir tveimur árum en er nú að mæta til Mexíkó til að spila á sjálfu heimsmeistaramótinu í fótbolta í næstu viku, með Túnis.
Neffati var bara 19 ára þegar hann spilaði með KR í Bestu deildinni sumarið 2024. Hann spilaði þó aðeins fjóra deildarleiki og einn bikarleik, sem lánsmaður frá Norrköping í Svíþjóð, en sagði í viðtali eftir Íslandsförina að hún hefði gert sér gott. Leikirnir hefðu kannski getað orðið aðeins fleiri en Neffati fékk tvö gul spjöld og þar með rautt í óvæntu tapi gegn HK. Í viðtali við heimasíðu Norrköping eftir komuna heim til Svíþjóð sagði leikmaðurinn ungi að fótboltinn á Íslandi væri stundum svolítið grófur. „Þetta hefur hjálpað mér,“ sagði Neffati um dvölina hjá KR þegar hann var kominn heim til Svíþjóðar strax í júní 2024. „Markmiðið með að lána mig var það að ég fengi að spila og ég hef fengið það. Deildin hér er góð. Það er mikið um líkamleg átök inn á vellinum, mikil ákefð og ég fékk að reyna mig í því. Í sumum leikjum hafa menn spilað svolítið gróft og það hafa verið fullt af spjöldum. Það var góð reynsla fyrir mig,“ sagði Neffati. Mætir löndum sínum Hann er fæddur í Svíþjóð en ættaður frá Túnis og kaus að leika fyrir A-landslið Túnis, eftir að hafa spilað leiki fyrir yngri landslið Svíþjóðar. Þessi nú 21 árs gamli hægri bakvörður var svo valinn í 26 manna HM-hópinn sem Sabri Lamouchi, landsliðsþjálfari Túnis, ætlar að stóla á. Það þýðir að hann mætir í raun löndum sínum, því Túnis er í riðli með Svíþjóð og mætast þjóðirnar 14. júní. Japan og Holland eru svo einnig í sama riðli.
HM 2026 í fótbolta Besta deild karla KR Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Leik lokið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú keflvísk mörk á níu mínútum Íslenski boltinn FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Íslenski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú keflvísk mörk á níu mínútum Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sjá meira