Vaxtaplanið sé tímaskekkja Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. júní 2026 23:35 Margrét Tryggvadóttir er formaður Rithöfundasambands Íslands. Vísir/Anton Brink Rithöfundasamband Íslands telur vaxtarplan ríkisstjórnarinnar vera tímaskekkju þar ofuráhersla er lögð á störf sem tæknin er komin næst því að gera óþörf. Á sama tíma sé sneitt fram hjá verðmætustu vaxtatækifærum atvinnulífs. „
Rithöfundasamband Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að endurskoða atvinnustefnu sína og vaxtarplan fram til ársins 2035, leggja áherslu á að rækta skapandi atvinnugreinar, bókmenntir og listir og skapa þeim hagstæð skilyrði til vaxtar,“ segir í ályktun Rithöfundasambands Íslands af aðalfundi þess. Sambandið minnir á að í haust skilaði stjórn þess umsögn við atvinnustefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur þar sem lagt var til að hlúð yrði að störfum við listir og menningu þar sem þau skili mun meiru til samfélagsins af andlegum og efnahagslegum verðmætum en flest önnur störf. Einnig séu lista- og menningarstörf sjálfbær, umhverfis- og loftslagsvæn, þau megi stunda hvar sem er á landinu og lyfti anda landsmanna. „Skemmst er frá því að segja að umsögn RSÍ var tekið fálega. Í atvinnustefnunni er ekki minnst einu orði á bókmenntir, og aðeins á listgreinar eins og tónlist og kvikmyndagerð sem hluta af upplifunariðnaði sem geti lagt ferðaþjónustunni lið,“ segir í ályktuninni. Til hárborinnar skammar „Hið svokallaða vaxtarplan er um margt tímaskekkja sem leggur ofuráherslu á þau störf sem tæknin er komin næst því að gera óþörf, en sneiðir hjá verðmætustu vaxtartækifærum atvinnulífsins, þar sem Íslendingar hafa nú þegar skapað sér góða samkeppnisstöðu á alþjóðavettvangi: í hinum skapandi greinum, bókmenntum og listum. Þetta vanmat og skilningsleysi ríkisstjórnar bókmenntaþjóðarinnar á mikilvægi bókmennta og lista sem atvinnugreinar er til háborinnar skammar.“ Það sé úrelt hugsun að líta ekki á menningu sem atvinnugrein og tekjulind heldur íþyngjandi útgjaldalið. Skapandi greinar séu ein af undirstöðum kraftmikils og aðlaðandi þjóðfélags. Rithöfundasambandið segir að árið 2022 hafi beint framlag menningar og skapandi greina numið 3,5 prósent af landsframleiðslu, um 150 milljarðar króna. Á móti kemur fækkar þeim sem starfa við skapandi greinar á Íslandi um meira en fimmtán prósent milli áranna 2024 og 2025. „Rithöfundasamband Íslands skorar á ríkisstjórn Íslands að endurskoða atvinnustefnu sína, viðurkenna menninguna sem mikilvægan vaxtarbrodd og skapa íslenskum listamönnum frjótt og lífvænlegt umhverfi til að starfa í. Það er gott að hyggja að gagnaiðnaði, sjávarútvegi og ferðaþjónustu, en ef enginn vinnur við að skrifa og skapa fellur allt hitt um sjálft sig. Ísland er ekki verstöð, eða rafhlaða fyrir gagnaver, heldur heimkynni okkar.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Menning Bókmenntir Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira