Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Orkan 9. júní 2026 11:57 Brynja Guðjónsdóttir, markaðsstjóri Orkunnar. Fyrirtækið hefur sett nýjan leik í gang þar sem tryggir viðskiptavinir geta unnið sér inn fría dælingu með mánaðarlegum viðskiptum. Fyrir flesta eru kaup á eldsneyti hluti af daglegu lífi, því orka á bílinn er nauðsynjavara til að halda honum gangandi. Flest stoppum við bara á næstu bensínstöð, dælum eða hlöðum bílinn og höldum svo áfram. Það er sjaldnast eitthvað í þessu ferli sem vekur mikla eftirvæntingu.
En, hvað ef það er hægt að fá meira út úr þessum reglulegu stoppum á næstu bensínstöð? Það var spurningin sem varð kveikjan að leiknum Haltu þínu striki, sem Orkan setti í loftið fyrir nokkrum vikum og hefur vakið mikla athygli meðal viðskiptavina. „Við vildum hugsa út fyrir hefðbundna afslætti og búa til eitthvað sem er bæði einfalt, gagnlegt og skemmtilegt að fylgjast með,“ segir Brynja Guðjónsdóttir, markaðsstjóri hjá Orkunni. „Úr varð að við settum í loftið Haltu þínu striki, nýjan og einfaldan leik, þar sem tryggir viðskiptavinir okkar geta unnið sér inn fría dælingu með mánaðarlegum viðskiptum. Einnig er hægt að vinna þrjár gjafir, sem við stiltum upp yfir tímabilið til að gleðja enn meira.“ Ný nálgun á eldsneytismarkaði á Íslandi Undanfarin ár hefur svokölluð leikjavæðing orðið sífellt stærri hluti af þjónustu og markaðssetningu fyrirtækja víða um heim. Flestir þekkja hana úr öppum og samfélagsmiðlum þar sem framvinda, litlir áfangar og umbun skapa hvatningu til að halda áfram. „Við erum flest þannig að vilja sjá framfarir í einhverju formi. Hvort sem það er í heilsuappi, tungumálaforriti eða annars staðar. Það var því spennandi að tengja hugmyndafræðina við okkar vöru og sjá hvort hægt væri að skapa skemmtilegt samtal meðal viðskiptavina um að fylla tankinn.” segir Brynja. Hugmyndin á bak við Haltu þínu striki er nefnilega einföld. Viðskiptavinir safna strikum með mánaðarlegum viðskiptum hjá Orkunni. Fyrir hvern mánuð sem Orkulykillinn er notaður við eldsneytiskaup eða hraðhleðslu rafbíls bætist eitt strik við. Haldi viðskiptavinur strikinu sínu samfleitt í tólf mánuði fær hann fría dælingu í formi inneignar sem byggir á meðaltali á notkun þessa tólf mánuði. „Eldsneyti er nauðsynjavara fyrir marga. Þess vegna fannst okkur mikilvægt að leikurinn skili raunverulegum ávinningi til baka. Á sama tíma hefur verið gaman að sjá hversu margir tengja við leikinn og fylgjast með framvindunni sinni,“ segir Brynja. Núverandi viðskiptavinir Orkunnar voru fyrstir til að fá tækifæri að hefja leikinn og viðtökurnar hafa farið fram úr væntingum. „Það er yfirleitt ekki skemmtilegasta verk dagsins að dæla á bílinn,“ segir hún og hlær. „Þess vegna hefur verið gaman að upplifa jákvæðar viðtökur viðskiptavina og heyra af spjalli og jafnvel keppni um fjölda strika.“ Brynja er sjálf meðal þátttakenda. „Ég er búin að vera með frá upphafi, komin með þrjú strik og búin að fá eina gjöf. Ég fylgist með stöðunni á mínum síðum og frítankurinn minn er nú þegar kominn upp í rúmar átta þúsund krónu. Það sýnir vel hvernig hvert stopp safnast fljótt saman.“ Rafmagn og eldsneyti eru reiknuð hvort í sínu lagi, þannig að bæði rafbílaeigendur og þeir sem aka um á hefðbundnum bílum geta byggt upp sína eigin inneign. Sumarvikurnar orðnar hluti af Strikinu Nú þegar ferðasumarið er að hefjast hefur Orkan einnig fært vinsælu sumarvikurnar sínar inn í Haltu þínu striki. Frá byrjun júní og út ágúst geta viðskiptavinir valið fjórar vikur þar sem þeir njóta aukins afsláttar á eldsneyti og rafmagni. „Sumarvikurnar eru eitthvað sem margir viðskiptavinir okkar þekkja vel og hafa nýtt sér árum saman,“ segir Brynja. „Með því að færa skráningu þeirra inn í Haltu þínu striki gerum við upplifunina einfaldari og aðgengilegri, allt á einum stað,“ segir Brynja. „Það er ákveðin stemning sem fylgir íslenska sumrinu. Margir leggja land undir fót, heimsækja fjölskyldu og vini og njóta þess að ferðast um landið. Ég var sjálf að viðra tjaldvagninn síðustu helgi og get ekki beðið eftir fyrstu útilegunni. „Sumarfríinu fylgir aukinn kostnaður og hefur okkar markmið með sumarvikunum alltaf verið að ýta undir að viðskiptavinir fái meira út úr því að ferðast og að það sé ávinningur fólginn í því að velja Orkuna.“ Aukið virði úr reglulegum viðskiptum Þótt Haltu þínu striki byggi á einfaldri hugmynd segir Brynja að kjarninn sé í raun enn einfaldari. „Við viljum að viðskiptavinir finni raunverulegan ávinning við að velja Orkuna aftur og aftur. Strikið gerir það sýnilegt og sumarvikurnar bæta svo við auknum ávinningi þegar ferðagleðin er sem mest. Þetta snýst allt um að skila meira virði til viðskiptavina okkar,“ segir hún að lokum. Orkan er fjölorkufélag sem rekur 75 sjálfsafgreiðslustöðvar um allt land og er eina félagið sem selur alla fimm orkugjafana; bensín, dísel, metan, vetni og rafmagn. Markmið Orkunnar er að bjóða lægri verð og veita bestu þjónustuupplifun til viðskiptavina með snjöllum lausnum.
Bílar Mest lesið Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Fleiri fréttir Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Land Rover veisla á laugardaginn Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Greiðsluáskorun „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Sjá meira