„Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Aron Guðmundsson skrifar 9. júní 2026 12:00 Lionel Messi, skærasta stjarna Argentínu og einn besti leikmaður allra tíma og Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins. Vísir/Samsett Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, segir mörg smáatriði fylgja því að greina besta landslið í heimi. Lið ríkjandi heimsmeistara Argentínu sem Ísland mætir í nótt.
Leikur Argentínu og Íslands hefst klukkan eitt í nótt og er spilaður í Alabama í Bandaríkjunum. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport. Um er að ræða síðasta leik heimsmeistaranna fyrir HM og mun besti knattspyrnumaður sögunnar, Lionel Messi, reyna að klekkja á strákunum okkar. Íslenska landsliðið hefur fengið afar áhugaverðar viðureignir í þessum landsliðsglugga. Liðið tapaði með minnsta mun gegn Japan í Tókýó á dögunum og gæti komandi áskorun gegn heimsmeisturunum ekki verið stærri. Arnar hefur haft gaman af því að greina lið heimsmeistaranna og leikmenn þeirra. „Það eru mörg smáatriði sem fylgja því að vera besta lið í heimi,“ segir Arnar í samtali við Val Pál Eiríksson, íþróttafréttamann Sýnar. „Maður sér það svo greinilega þegar að maður fer yfir helstu aðalsmerki þessara liða ekki bara hversu góðir leikmennirnir eru heldur einnig hversu mikil sál og samheldni eru í þessum liðum. Það eru engar tilviljanir í lífinu, sérstaklega ekki í íþróttum. Argentínumenn, Frakkar og þessar þjóðir eru fremstar í okkar íþrótt.“ Leikurinn mikilvægur í vegferð íslenska landsliðsins sem spilar ekki á HM en er með augun á næsta Evrópumóti árið 2028. „Það eru svo margir leikmenn og stuðningsmenn sem horfa til ársins 2028 en við megum ekki gleyma því að njóta ferðalagsins þangað til. Það eru hörku leikir framundan. Nýta þessa leiki til að læra þessi smáatriði sem til þarf að ná árangri. Komast það langt og eiga það skilið að komast í lokakeppni á stórmóti.“ Það klikkaði í síðustu undankeppni. „Þegar að við förum yfir þá keppni áttum við ekki skilið að komast áfram, það voru of mörg smáatriði sem fóru úrskeiðis. Heildarmyndin og bragurinn er góður. Við erum mjög samkeppnishæfir sem er mjög ánægjulegt á móti sterkum liðum. Við spilum eintóma sterka útileiki og erum að gera okkur vel gildandi. Höldum því áfram og reynum að laga aðeins hausinn á okkur.“
Landslið karla í fótbolta HM 2026 í fótbolta Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Íslenski boltinn Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Fleiri fréttir Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Sjá meira