Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Jakob Bjarnar skrifar 9. júní 2026 14:53 Stefán Eiríksson útvarpsstjóri hefur fengið bréf frá Haraldi Ólafssyni prófessor. vísir/samsett Nei-sinnar eru æfir vegna Silfurs Ríkisútvarpsins en það var helgað spurningunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Heimsýn, sem berst gegn aðildarviðræðum, hefur sent bréf sem stílað er á Stefán Eiríksson útvarpsstjóra og Stefán Jón Hafstein formann stjórnar Rúv þar sem viðraðar eru þungar áhyggjur af efnistökum Rúv. „
Þetta er áhyggjuefni,“ segir Haraldur Ólafsson prófessor, formaður Heimssýnar, en hann ritaði bréfið fyrir hönd samtakanna. „Mér sýnist að trú margra, þar á meðal sumra fréttamanna, á því að embættismenn og fræðimenn séu í eðli sínu hlutlausir sé mjög mikil og oft á skjön við raunveruleikann. Eins hafa margir þá trú að það sé hægt að fá fræðimenn til að koma með „hið rétta svar“ við öllu mögulegu, stundum langt út fyrir það sem hægt er. Það myndi kannski auðvelda lífið. Það var margt sagt í þessu Silfri sem er vægast sagt umdeilanlegt,“ segir Haraldur í stuttu samtali við Vísi. Í Silfrinu voru til viðtals þau Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009–2013, sem sagði frá því ferli sem tekur við ef þjóðin greiðir atkvæði með því að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið. Aðrir gestir voru Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ, Kolbeinn Árnason ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins, Margrét Einarsdóttir lagaprófessor við HR og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur. Allt þekktir fylgjendur ESB Í bréfi Heimssýnar segir að áhyggjur samtakanna af Evrópuumræðunni á RÚV séu miklar og fari vaxandi. Nefnt er að um daginn hafi verið umræðuþátturinn Torgið og þar hafi verið teflt fram sérfræðingum sem þekktir eru fyrir stuðning við aðild Íslands að Evrópusambandinu en aðeins Erna Bjarnadóttir, stjórnarmaður í Heimssýn, hafi verið til andsvara. Hún hafi fengið jafn mikinn tíma og Snærós Sindradóttir hjá Evrópuhreyfingunni. Haraldur telur Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í umræðunni um Evrópusambandið og hefur ritað, fyrir hönd Heimssýnar, bréf þar um sem stílað er á Stefán Jón Hafstein formann stjórnar Rúv og Stefán Eiríksson útvarpsstjóra.vísir/vilhelm Þá er nefnt að utanríkisráðherra Austurríkis hafi heimsótt Ísland á dögunum og hún fengið afar rúman tíma á RÚV til að ræða aðild Íslands að Evrópusambandinu án þess að einhver væri til andsvara. „Nú í kvöld, 8. júní, er ætlunin að ræða Evrópumál í Silfrinu. Allir nema einn eru þekktir fylgjendur aðildar að Evrópusambandinu. Enginn þátttakenda er henni andvígur svo vitað sé. Þessi slagsíða er orðin mikil og ekkert lát á henni. Við verðum að biðja ykkur að taka á þessu máli svo eðlileg lýðræðisleg umræða fái þrifist í landinu,“ segir í bréfinu. Á samfélagsmiðlum skiptast menn í tvö horn Haraldur segir að eitt af mörgu sérstöku í þættinum hafi verið að fá Gylfa í þáttinn til að svara spurningunni um hvað honum þætti um gjaldmiðlaskýrsluna. „Ekki seðlabankamenn eða alla hina fræðingana sem hafa gagnrýnt hana opinberlega heldur fyrrverandi ráðherra í Jóhönnu-stjórninni og stuðningsmann inngöngu.“ Ef marka má hatramma umræðu á samfélagsmiðlum, þar sem menn skiptast mjög í tvö horn í afstöðu sinni, svo sem frá þeim félögum Gísla Frey Valdórssyni hlaðvarpsstjóra og Stefáni Einari Stefánssyni blaðamanni á Morgunblaðinu, eru allir þessir aðilar sem kynntir voru til sögunnar sem sérfróðir um Evrópusambandið hlynntir inngöngu í ESB. Hins vegar liggur fyrir að þeir sem telja það eina rétta í stöðunni að segja „Já“ þann 29. ágúst næstkomandi eru afar ánægðir með þáttinn og telja hann hafa verið afar upplýsandi. „Þetta er alveg öfgalaust og mjög fróðlegt,“ segir til að mynda Illugi Jökulsson rithöfundur og álitsgjafi um þáttinn. Einhvers staðar þar á milli leggur Þorvaldur Sverrisson ráðgjafi orð í belg og segir háðskur á sinni Facebook-síðu: „Óþægilegt að horfa á Silfrið í kvöld. Hlutdrægt og óskiljanlegt af hverju það var ekki hægt að útvega a.m.k. einn geltandi hund og einn taugaveiklaðan nasista til að fá ballans í umræðuna.“ Dagur ánægður með þáttinn Þátturinn var nefndur í störfum þingsins fyrr í dag og lýsti Dagur B. Eggertsson Samfylkingu yfir mikilli ánægju með þáttinn, loksins væru þetta mál rædd af yfirvegun, ígrundun og þekkingu í stað upphrópana og frammíkalla. „Stundum fá bábiljur mesta athygli í umræðunni.“ Sigríður Á. Andersen og Dagur B. Eggertsson. Þau voru ekki sammála um þátt Ríkissjónvarpsins.vísir/arnar/anton brink Sigríður Á. Andersen sagði á móti að það kæmi hreint ekki á óvart að Dagur væri ánægður með þáttinn. „Þátturinn var með nokkrum ólíkindum og það kemur ekki á óvart að Degi hafi hlýnað um hjartræturnar,“ sagði Sigríður. Hún sagði að öllum væri ljóst hver afstaða sérfræðinganna „svokölluðu“ væri. Sigríður Hagalín Björnsdóttir var umsjónarmaður hins mjög svo umdeilda þáttar. Hún segist bara starfsmaður á plani og vill vísa öllum spurningum til Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra og/eða Baldvins Þórs Bergssonar varafréttastjóra. Eða í yfirlýsingu sína frá í gær þar sem segir að þátturinn fjalli ekki um hvort segja eigi já eða nei í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eða hvort ganga eigi inn í ríkjasambandið. Heldur hvers konar ferli taki við, hvað af fyrri samingaviðræðum nýtist áfram ef þjóðin segi já. Skilur að heitar tilfinningar séu í málinu Baldvin Þór segir að bréfið sé stílað á útvarpsstjóra og útvarpsráð. En hann geti þó sagt að hann skilji vel að það séu heitar tilfinningar í þessari umræðu. „Þá er mikilvægt fyrir báðar fylkingar að gæta sanngirni í gagnrýni og tiltaka ekki aðeins atriði sem þau telja styðja við sinn málflutning. Baldvin Þór Bergsson er varafréttastjóri Ríkisútvarpsins. vísir/anton brink Þarna er til dæmis talað um Torgið en ekki nefnt að í þættinum voru birt viðhorf SA, SFS, SI og Bændasamtakanna sem voru öll frekar neikvæð auk þess sem ég held að þau sem voru í settinu munu nú seint teljast öll í já-liðinu,“ segir Baldvin Þór með vísan til bréfs Heimssýnar. Hann segir að Ríkisútvarpið muni birta reglur fyrir kosningar, sem vonandi verður á morgun. „Og eins og lög kveða á um munum við birta efni frá báðum fylkingum, þeim að kostnaðarlausa á okkar miðlum þegar nær dregur. Og svo held ég að það sé sjaldnast hollt að gagnrýna þætti áður en þeir fara í loftið,“ segir Baldvin Þór í samtali við Vísi.
Fjölmiðlar Ríkisútvarpið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Hin hatramma umræða um aðildarviðræður við Evrópusambandið, en þjóðaratkvæðagreiðsla er fyrirhuguð 29. ágúst, er nú hafin og skeytin fljúga vinstri hægri og fer þar ýmislegt á milli mála. Er þá ekki best að heyra í manninum sjálfum sem var í miðju átakanna þegar hlé var gert á viðræðunum á sínum tíma? 25. mars 2026 07:02 Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Sjá meira
Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Hin hatramma umræða um aðildarviðræður við Evrópusambandið, en þjóðaratkvæðagreiðsla er fyrirhuguð 29. ágúst, er nú hafin og skeytin fljúga vinstri hægri og fer þar ýmislegt á milli mála. Er þá ekki best að heyra í manninum sjálfum sem var í miðju átakanna þegar hlé var gert á viðræðunum á sínum tíma? 25. mars 2026 07:02