No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Sigurgeir Þorkelsson skrifar 9. júní 2026 20:28 Um 150 manns komu saman á Austurvelli í vikunni sem leið til að mótmæla frumvarpinu. Vísir/Vilhelm „Við hvetjum almenning til að hafna þessum lögum og beita öllum ráðum við að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd,“ segja samtökin No Borders í yfirlýsingu í tengslum við lög sem samþykkt voru á Alþingi í dag sem heimila stjórnvöldum að setja á fót svokallaða brottfararstöð. Samtökin hafa meðal annars beitt sér fyrir réttindum flóttafólks. „
Ekki einn alþingismaður greiddi atkvæði gegn frumvarpinu,“ segir í yfirlýsingunni. Nokkrar umræður voru um málið á þingi en segja má að umræðan hafi verið meira áberandi úti í samfélaginu. Fjöldinn allur af mannréttindasamtökum hafði lagst gegn samþykkt frumvarpsins. Síðast í gær mættust Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, og Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, í sjónvarpsfréttum og ræddu málið. „Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hafa nú innleitt lög sem stuðla að frelsissviptingu saklausra einstaklinga, þar á meðal ósakhæfra barna,“ segir í yfirlýsingunni. No Borders leiddu í vikunni mótmæli gegn frumvarpinu á Austurvelli. „Lögin eru birtingarmynd á siðferðislegu gjaldþroti stjórnvalda og því hvernig valdníðsla getur verið hulin með pólitískri misbeitingu tungumálsins og yfirvarpi.“ „Um er að ræða lagalega heimild til að koma á fót einangrunarbúðum fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og aðra útlendinga,“ segja samtökin. Það sé stefna sem knúin sé „áfram af kerfislægum rasisma, hvítri yfirburðahyggju og þeirri hugmynd þrælahaldsins að hvít yfirstétt geti hneppt brúnt eða svart fólk í fjötra að eigin geðþótta.“ Samtökin hvetja til andspyrnu, tryggja þurfi að brottfararstöðin taki aldrei til starfa. „Við hvetjum almenning til að hafna þessum lögum og beita öllum ráðum við að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd, skipuleggja andspyrnu og tryggja að aldrei verði hægt að taka búðirnar í notkun og reka þær með öllum tiltækum ráðum.“
Brottfararstöð fyrir útlendinga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Innflytjendamál Hælisleitendur Tengdar fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð er orðið að lögum. Í brottfararstöð munu útlendingar geta sætt frelsissviptingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Fjöldi mannúðarsamtaka hefur gagnrýnt frumvarpið, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar þröngar skorður. 9. júní 2026 16:08 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira
Umdeild brottfararstöð leidd í lög Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð er orðið að lögum. Í brottfararstöð munu útlendingar geta sætt frelsissviptingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Fjöldi mannúðarsamtaka hefur gagnrýnt frumvarpið, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar þröngar skorður. 9. júní 2026 16:08