„Þessi leikur er gleymdur og grafinn“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. júní 2026 21:38 Þorsteinn Halldórsson, brúnaþungur á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Anton Brink Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, viðurkennir að liðið hafi mætt ofjarli sínum er heimsmeistarar Spánar mættu á Laugardalsvöll í kvöld.
Íslensku stelpurnar máttu þola 1-6 tap í lokaleik riðlakeppni undankeppni HM 2027 í kvöld. Ísland hafði þegar tryggt sér þriðja sæti riðilsins, en með sigrinum tryggðu Spánverjar sér efsta sætið og þar með beint sæti á HM. „Bara svona upp og ofan,“ sagði Þorsteinn er hann var spurður út í það hvernig hann mæti frammistöðu síns liðs í kvöld. „Auðvitað var þetta erfiður leikur þar sem við vorum að spila á móti frábæru liði. Þær voru bara með yfirburði í possession, en bara jákvætt að við skyldum ná að skora. Gott að fá nýjan markaskorara inn,“ bætti Þorsteinn við, en Linda Líf Boama skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í kvöld. Þá segir Þorsteinn að þetta sé besta lið sem hans lið hefur spilað á móti. „Já. Tæknilega eru þær bara frábærar. Bara allt þetta, án bolta, hreyfingar og bara góðar í fótbolta. Öll grunnatriði eru upp á tíu.“ „Auðvitað er alltaf eitthvað sem við hefðum getað gert betur. Við hefðum getað lokað betur varnarlega, einfaldar sendingar að klikka og eitthvað svona. Við hefðum getað gert betur þar og svo segir það sig sjálft að þegar þú tapar 6-1 þá er eitthvað sem þú hefðir getað gert betur.“ Eins og flestir gerðu ráð fyrir ætluðu íslensku stelpurnar að vera þéttar fyrir í vörninni og treysta á söggar sóknir í kvöld. Þorsteinn vildi þó ekki meina að leikskipulagið hafi farið út um gluggan þegar Spánverjar skoruðu eftir aðeins fimm mínútna leik. „Nei alls ekki. Auðvitað viltu ekkert fá á þig mark og sérstaklega ekki strax í byrjun. En leikskipulagið breyttist ekkert. Við þurftum að loka og vera þéttar og annað hvort þurftum við að fara í hápressu eða bara lágpressu. Það var engin breyting á því. Stundum vantaði meiri ró á boltann og að vilja vera með hann. En svo erum við bara að elta svolítið mikið og þær eru mjög góðar í að halda boltanum. Þær þreyta andstæðinginn og keyra svo á þig.“ Fáir jákvæðir punktar Þorsteinn horfði þó einnig á björtu hliðarnar og hrósaði liðinu aftur fyrir að hafa náð inn marki. „Þetta var bara vel klárað. Skyndisókn og Karólína var þolinmóð að bíða eftir réttu sendingunni þannig að Linda gat bara klárað þetta strax.“ „Linda er búin að standa sig vel og vonandi heldur hún því áfram. Gott að hún skoraði. Það er gott að skora því þá ertu búin með það. Þá er sú pressa farin af þér sem framherji.“ Hann sá þó ekki marga aðra jákvæða punkta eftir leikinn. „Ég þarf bara aðeins að hugsa það. Það jákvæðasta var að skora. Það eru ekkert rosalega margir mjög jákvæðir hlutir sem maður horfir í svona strax eftir leik. Auðvitað er maður fúll og svekktur og allt það, en núna snýst þetta bara um að þessi leikur er gleymdur og grafinn og nú þurfum við bara að bíða og sjá hvað kemur upp úr hattinum. Þá hefst undirbúningur fyrir það verkefni eftir fjóra mánuði. Það er bara það sem við förum að horfa í núna. Við breytum ekki því sem er búið að gerast, en við getum haft áhrif á framtíðina.“ Riðlakeppnin á pari Riðlakeppni undankeppni HM er nú lokið og Ísland hafnar í þriðja sæti riðilsins með sex stig, á eftir Spánverjum og Englendingum. Úkraína rekur hins vegar lestina. En hvernig metur Þorsteinn riðlakeppnina í heild sinni? „Hún er bara á pari. Sex stig er eitthvað sem við ætluðum okkur að lágmarki og það tókst. Auðvitað hefðum við viljað fá stig á móti Englandi. Eitt eða þrjú. Það var góður leikur hjá okkur. En að sama skapi þá er það þannig að ef þú færð færi þá þarftu að nýta þau og klára leikinn með því að skora mörk.“ Að lokum segir Þorsteinn að þessi leikur í kvöld muni nýtast liðinu, þó hann sé gleymdur og grafinn eins og hann sagði áður. Spánn sé enda lið sem Ísland vill reyna að bera sig saman við. „Lærdómur. Þetta er leikur sem er alveg verðugur að skoða að sumu leyti. Það er lærdómur sem þú getur dregið af þessu. Hvað þurfum við að gera? Hvað er mikið sem við þurfum að gera til að hækka rána hjá okkur og stefna hærra?“ spurði Þorsteinn. „Það er engin spurning að við erum að spila á móti besta liði í heimi og við getum alveg dregið ýmsan lærdóm af því hvað þær eru að gera og hvar við þurfum að bæta okkur. Það eru hlutir sem við getum séð úr svona leik,“ sagði Þorsteinn að lokum.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Íslenski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tottenham - Aston Villa | Komast heimamenn á blað? Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref JJ Gabriel mættur til Barcelona Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli Olise skoraði þrennu í stórsigri Bayern München „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” Hlín hafði betur í Íslendingaslagnum í Svíþjóð Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik Jón Dagur breyst úr floppi í stjörnu „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma Freyr fái fólk til að trúa: „Eitthvað mjög sérstakt að gerast hérna“ Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Veður í Infantino: „Hegðun sem ógnar tilvist leiksins“ Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Peningaflóð til norska sambandsins eftir róður Haalands og félaga Sjá meira