Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. júní 2026 11:31 Fyrirliðinn og fyrrum fyrirliðinn áttu gott spjall. getty Roy Keane og Bruno Fernandes, fyrrverandi og núverandi fyrirliði Manchester United, hafa náð sáttum. Þeir rifust opinberlega í vor, Keane kallaði Fernandes sjálfelskan en Portúgalinn sagði hann ljúga.
Keane starfar sem sparkspekingur hjá Sky Sports og eftir leik Manchester United gegn Nottingham Forest í síðasta mánuði var hann hugarfar fyrirliðans Fernandes. Þá vildi Keane meina að Fernandes setti sjálfan sig og stoðsendingametið (sem hann jafnaði í þessum leik og átti eftir að slá í næsta leik) í fyrsta sæti en árangur liðsins í annað sæti. Fernandes svaraði fyrir sig og sagði málið byggt á misskilningi. Keane hefði misskilið svör hans í viðtali eftir leik og farið með rangt mál í kjölfarið. „Það voru líklega augnablik í dag þar sem ég hefði átt að senda í stað þess að skjóta,“ er það sem Fernandes sagði. Keane heyrði þetta öfugt og hélt að Fernandes hefði bara viljað senda, til að slá stoðsendingametið, en ekki skjóta boltanum. Nú hafa þeir Keane og Fernandes grafið stríðsöxina. Keane sagði í hlaðvarpinu Stick to Football að þeir hefðu átt „gott og þroskað spjall“. „Eftir viðbrögðin um það sem við sögðum í hlaðvarpinu fyrir nokkrum vikum hafði hann samband við mig og vildi spjalla. Ég hringdi í hann og við áttum gott spjall,“ sagði Keane. „Það var ánægjulegt því þegar við gerum hlaðvörp eða erum með leiki, þá hugsar maður stundum að maður segi eitthvað og komi einhverju á framfæri sem skilar sér ekki rétt og fólk fer í uppnám. Hann sagðist vilja tala við mig. Við áttum gott og þroskað samtal. Ég set ákveðin mörk gagnvart leikmönnum. Ég vil ekki vera að tala við leikmenn eða umboðsmenn þeirra á nokkurra vikna fresti, ég vil ekki fara þá leið, en af og til gæti leikmaður haft samband, og ég tel að það hafi verið mikilvægt að ég talaði við hann. Það hefur verið mikið í gangi og mikið fjallað um málið. Hann er augljóslega stór leikmaður fyrir United, ég er fyrrverandi leikmaður United. Þessi samskipti og að eiga almennilegt samtal, ég naut þess virkilega. Vonandi gerði hann það líka. Gott spjall um allt milli himins og jarðar og mér leið betur á eftir,“ sagði Keane einnig.
Manchester United Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Sport Fleiri fréttir Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Sjá meira